Fjölskyldunefnd, fundur 31
14. apríl 2025, kl. 16:15 til 17:21, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 892 liður 17
Fundargerð 31. fundar fjölskyldunefndar lögð fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn, fundur 396 liður 8
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 14. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 14. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Aðgerðaáætlun barnaverndar
Mál 2504110 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að fela sviðstjóra fjölskyldusviðs að vinna aðgerðaráætlun barnaverndarþjónustu í samráði við starfsfólk barnaverndar.
-
2. Geðverndar og virkni úrræði
Mál 2504109 Allur ferill málsins
Sviðstjóri fjölskyldusviðs kynnti samstarfsverkefni Fjarðabyggðar, Múlaþings, Starfa og HSA um geðræktar- og virkni úrræði. Verkefnið er styrkt af ALCOA foundation.
-
3. Móttaka og innritun barna í leikskóla
Mál 2504113 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir eyðublað vegna umsókna um leikskólapláss. Þar komi fram nauðsynlegar upplýsingar um þarfir og stöðu barna fyrir leikskóladvöl.
-
4. Frístundakerfið Vala samningur og vinnslusamningur
Mál 2502062 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að taka upp Völu frístundakerfið fyrir skólafrístund að hausti 2025. Með innleiðingu kerfisins verður boðið upp á rafrænt utanumhald fyrir skráningu barna, viðveru og samskipti við foreldra. Kerfið er nú þegar notað fyrir sumarfrístund og mun innleiðing fyrir skólafrístund einfalda starfsemi og stuðla að samræmdri þjónustu í öllum hverfum Fjarðabyggðar.
-
5. Frumkvæðisathugun á stoð- og stuðningsþjónustureglum sveitarfélaga - Skýrsla
Mál 2502156 Allur ferill málsins
Frumkvæðisathugun á stoð- og stuðningsþjónustureglum sveitarfélaga_febrúar 2025 kynnt fyrir fjölskyldunefnd. Sveitarfélagið þarf að uppfæra reglur þar sem það á við.