Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 891

14. apríl 2025, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 396 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 891, 892 og 893, utan liðar 13 í fundargerð 892. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð

    Mál 2404177 Allur ferill málsins

    Kynnt samantekt um stöðu mála vegna útboðs sorpmála í Fjarðabyggð.

    Bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

  2. 2. Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina

    Mál 2403230 Allur ferill málsins

    Framlagt innra vinnuskjal sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs varðandi viðgerð á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar.

    Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir á næsta fundi.

  3. 3. Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar

    Mál 2504103 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Tandraorku vegna mögulegrar kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar.

    Bæjarráð þakkar fyrir erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ræða við forsvarsmenn Tandraorku.

  4. 4. Íþróttahús á Eskifirði

    Mál 2501087 Allur ferill málsins

    Umræður varðandi uppbyggingu íþróttahúss á Eskifirði.

    Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar hjá starfshóp um fasteignir í eigu Fjarðabyggðar.

  5. 5. Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði

    Mál 2501185 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að viljayfirýsingu við R101 varðandi undirbúning að uppbyggingu miðbæjakjarna á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og felur bæjarstjóra undirritun hennar.

  6. 6. Til umsagnar 268. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).

    Mál 2504060 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur birt til umsagnar 268. mál um verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).

  7. 7. Nýjar samþykktir EBÍ-breytingar á kjöri í fulltrúaráð EBÍ

    Mál 2504062 Allur ferill málsins

    Fundargerð fulltrúaráðsfundar EBÍ og nýjar samþykkir aðildarsveitarfélaga EBÍ lagðar fram til kynningar.

  8. 8. Ársfundur Byggðastofnunar 2025

    Mál 2504096 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á ársfund Byggðastofnunar sem fram fer á Breiðdalsvík fimmtudaginn 8. maí.

    Fulltrúar úr bæjarstjórn munu sækja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  9. 9. Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 22. maí 2025

    Mál 2504099 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á ársfund NTÍ sem fram fer 22. maí n.k.

  10. 10. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025

    Mál 2501180 Allur ferill málsins

    Fundargerð 80. fundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 973 974, 975 og 976 lagðar fram til kynningar.