Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2025

Lokun Lyfju á Eskifirði

Mál 2505028 Fyrst á dagskrá 12. maí 2025, síðast 22. maí 2025. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 22. maí 2025, frá 0:06:04

Í heiti málsins: Eskifjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2025

    Bæjarráð, fundur 894 liður 6

    Framlagt bréf Lyfju um lokun apóteksins á Eskifirði.

    Bæjarráð harmar ákvörðun Lyfju um að loka útibúi á Eskifirði. Bæjarstjóra er falið að koma mótmælum bæjarráðs á framfæri við forsvarsmenn Lyfju og ræða mögulegar úrbætur og ráðstafanir til að tryggja lyfjaþjónustu íbúa áfram, sérstaklega gagnvart þeim sem eiga erfitt með að sækja þjónustuna annað.

  2. Bæjarstjórn, fundur 397 liður 1.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 894“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 397. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:06:04 einnig vorum við að taka fyrir bréf lyfju sem að því miður tilkynnti að þeir hyggjast loka apótekinu á eskifirði
    • 0:06:32 og bæjarstjórn hefur verið í samskiptum við forsvarsmenn lyfju og við bókuðum jafnframt mótmæli við lokunina og bæjarstjóri er í þá viðræðum við fyrirtækið um það hvernig þeir hyggjast eins og fram kom í tilkynningunni hjá þeim mæta þá þeim sem að eiga erfitt með að sækja lyfjaþjónustu langt að og einnig þá munum við þá skoða
    • 0:07:00 munum við þá skoða í framhaldinu hvort við getum farið einhverjar svona leiðir eins og var gert á fáskólsfirði varðandi kjörbúðina þar sem er þá með undanþágu til þess að selja ólifseyjaskyld lyf út frá því hversu langt er að sækja apótekstjónustu og ég held að það hafi nú gefist vel á fáskósfirði en eftir sem áður þá
    • 0:07:28 en eftir sem áður þá þarf auðvitað að huga þeim hóp sem stendur hvað viðkvæmast gagnvart því að að sækja lyf langt að og verður það verkefni bæjarstjórans að leiða það til lykta í samráð við fyrirtækið