Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 335

16. mars 2026, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 936 liður 11

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 16. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 412 liður 11

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 16. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn

    Mál 2510179 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn vegna fyrirhugaðs útboðs á dýpkun. Stjórnanda falið að láta lagfæra útboðsgögn út frá umræðum á fundinum.

  2. 2. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar

    Mál 2502033 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Loðnuvinnslunnar vegna Innri löndunarbryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra og stjórnanda hafna að afla frekari gagna og leggja fyrir að nýju.

  3. 3. Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju

    Mál 2603171 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Loðnuvinnslunnar um uppsetningu slönguhúss og löndunarbúnaðar á Strandarbryggju, Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra að ræða við Loðnuvinnsluna um útfærslur.

  4. 4. Hafnargata 30 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2603169 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi vegna Hafnargötu 30 á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn vísar erindinu til stjórnanda hafna til úrlausnar í samstarfi við stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar.

  5. 5. Leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða

    Mál 2603112 Allur ferill málsins

    Lagðar fram leiðbeiningar Innviðaráðuneytisins um afmörkun hafnarsvæða. Hafnarstjórn felur stjórnanda hafna að undirbúa breytingar á afmörkun hafnarsvæða Fjarðabyggðarhafna í samræmi við leiðbeiningar og leggja fyrir að nýju.

  6. 6. Beiðni um uppsetningu á farsímabúnaði í Norðfjarðarvita

    Mál 2602147 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Mílu þar sem óskað er eftir heimild til að setja upp farsímasendi í Norðfjarðarvita til að bæta farsímasamband. Hafnarstjórn samþykkir uppsetningu farsímasendis að því gefnu að jákvæð umsögn komi frá Vegagerðinni.

  7. 7. Umsókn um styrk til endurgerðar bryggju við Selhellu Mjóafirði

    Mál 2603051 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn eigenda Selhellu í Mjóafirði um styrk til endurgerðar bryggju við húsið. Hafnarstjórn finnst framtakið gott en því miður fellur það ekki undir reglur um styrki til viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Stjórnanda hafna er falið að ræða málið við umsækjanda.

  8. 8. Virðisaukaskattur og hringsiglingar

    Mál 2602240 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað frá AECO.

  9. 9. Áskorun - Verndun og aðgengi að strandlengju Íslands

    Mál 2602228 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf frá Siglingasambandi Íslands.

  10. 10. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

    Mál 2601118 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 480.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands