Bæjarráð, fundur 931
16. febrúar 2026, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 410 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Mál 2601178 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsóknum um styrki í Fiskeldissjóð fyrir kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar, II. áfanga uppbyggingar Íslenska stríðsárasafnsins, nýs slökkvibíls og malbikun hafnarsvæðis á Leirubakka.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um styrk til Fiskeldissjóðs vegna verkefnanna.
-
2. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs niðurstöðu verðkönnunar vegna uppsteypu sökkla, platna og veggja í I. áfanga Íslenska stríðsárasafnsins. Stjórn samþykkir að tilboði lægstbjóðanda verði tekið, Launafl ehf. sem var undir kostnaðaráætlun. Stjórn leggur áherslu á að tímamörk verkþáttarins standi en þau eru í maí 2026.
Bæjarráð samþykkir tillögur stjórnar og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
-
3. Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk
Mál 2601050 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um listamann og kaup á listaverkum.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Upplýsingaöryggismál - upplýsingaöryggisreglur
Mál 2602116 Allur ferill málsins
Framlagðar uppfærðar öryggisreglur upplýsingatæknimála en þær hafa verið aðlagaðar frá fyrri reglum sem voru settar árið 2018.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)
Mál 2601063 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd uppfærðum drög að reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum, ásamt verkferlum. Með reglunum er m.a. skýrt ferli og ábyrgð vegna úthlutunar til skóla til að tryggja samhæfingu og fullnýtingu mannvirkja.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Gjaldskrá frístundaheimila 2026 2.útgáfa
Mál 2602063 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingu á gjaldskrá frístundaheimila í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir uppfærða gjaldskrá og taka breytingarnar gildi 1. apríl 2026.
-
7. Kennitölur undirfyrirtækja og deilda sveitarfélagsins
Mál 2602111 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga um að lokað verði óvirkum kennitölum deilda eða málaflokka sveitarfélagsins. Um er að ræða kennitölur sem voru til fyrir sameiningu sveitarfélaga sem sameinuðust Fjarðabyggð og hafa ekki tilgang.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur fjármálasviði að vinna málið áfram.
-
8. Íbúaapp Fjarðabyggðar
Mál 2602114 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga um að þróað og innleitt verði upplýsinga- og þjónustuapp fyrir Fjarðabyggð. Markmið verkefnisins er að sameina helstu þjónustuupplýsingar sveitarfélagsins á einum aðgengilegum og notendavænum stað, þannig að íbúar og gestir geti á einfaldan hátt nálgast áreiðanlegar og uppfærðar upplýsingar í síma sínum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur upplýsingafulltrúa að vinna málið áfram.
-
9. Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði
Mál 2601220 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði. Stækkunin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
-
10. Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Mál 2601258 Allur ferill málsins
Framlagðar bókanir frá heilbrigðisnefnd vegna frumvarpa til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir ásamt eftirliti með matvælaöryggi.
Bæjarráð tekur undir ályktun Heilbrigðiseftirlits Austurlands um breytingar sem kynntar hafa verið á breytingum á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
-
11. Hvatning til umsagnar um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Mál 2602012 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi frá Atlantsflugi ehf.
-
12. Fagur fiskur í sjó
Mál 2602075 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi Samtak sjávarútvegssveitarfélaga um sameiginlegan fund Fagur fiskur í sjó.
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 51
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 22507014
- 13.2 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
- 13.3 Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði2601220
- 13.4 Framkvæmdaleyfi vegna strenglaganar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði2410177
- 13.5 Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga2601258
- 13.6 Fiskeldissjóður - umsóknir 20262601178
- 13.7 Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun2601008
- 13.8 Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði2309068
-
14. Fjölskyldunefnd - 50
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 14.1 Skóladagatöl 2026-20272601102
- 14.2 Gjaldskrá frístundaheimila 2026 2.útgáfa2602063
- 14.3 Fundargerðir farsældarráðs á Austurlandi 20262601236
- 14.4 Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)2601063
- 14.5 Bréf vegna tóbaksnotkunar2602043
- 14.6 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 20262602058
- 14.7 Til umsagnar 311. mál Réttindavernd fatlaðs fólks2601242
- 14.8 Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 602510228
- 14.9 Til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn2601241
- 14.10 Til umsagnar 312. mál -Frumvarp til laga: Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)2601243
- 14.11 Vallavinnusamningur 20262601098
- 14.12 Öldungaráð - 222512006F
- 14.13 Öldungaráð - 232601013F
-
15. Stjórn menningarstofu - 31
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 15.1 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
- 15.2 Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk2601050
- 15.3 Reglur um menningarstyrki2602064
- 15.4 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
- 15.5 Verkefni menningarstofu 20262602053
- 15.6 Umsóknir í Safnasjóð 20252510141
- 15.7 Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands2511096
-
16. Öldungaráð - 22
Fundargerð öldungaráðs frá 9. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 16.1 Heimsókn fulltrúa öldungaráðs á hjúkrunarheimilið Uppsali2512056
- 16.2 Heimsókn fulltrúa öldungaráðs til félags eldra fólks á Fáskrúðsfirði2512057
- 16.3 Viljayfirlýsing2511118
- 16.4 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20262509098
-
17. Öldungaráð - 23
Fundargerð öldungaráðs frá 19. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 17.1 Erindi frá öldungaráði Fjarðabyggðar til færni- og heilsumatsnefndar2511031
- 17.2 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
- 17.3 Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 602510228