Bæjarráð, fundur 930
9. febrúar 2026, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 410 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 9. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samgönguáætlun 2026 til 2040 auk fimm ára aðgerðaráætlunar til umsagnar, 322. mál
Mál 2601169 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsögn Fjarðabyggðar um samgönguáætlun 2026 til 2040 ásamt aðgerðaráætlun til næstu fimm ára.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að senda hana.
Fulltrúi Fjarðalistans styður í meginatriðum efni umsagnar Fjarðabyggðar um samgönguáætlun.
Fulltrúi Fjarðalistans tekur þó fram að hann styður ekki þá viðbótartillögu sem sett er fram í umsögninni um aðra samþætta lausn í jarðgangamálum að svo stöddu, þar sem sú framsetning sé til þess fallin að skapa óþarfa óvissu og rugla umræðuna um þá forgangsröðun jarðgangaverkefna sem þegar liggur fyrir.
Að mati fulltrúa Fjarðalistans er mikilvægt að umsögn sveitarfélagsins sendi skýr og samræmd skilaboð um þá áætlun sem liggur fyrir.
-
2. Veikindalaun 2025
Mál 2509181 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna veikindalauna fyrir síðari hluta ársins 2025.
Bæjarráð vísar kostnaði vegna veikindalaun til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
-
3. Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Mál 2601258 Allur ferill málsins
Umræða um drög að frumvarpi til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn.
-
4. Tillögur um einföldun á regluverk um verkefni sveitarfélaga
Mál 2602047 Allur ferill málsins
Framlögð könnun um verkefni sveitarfélaga sem hefur verið lögð fram í samráðsgátt.
Bæjarráð vísar erindi til nefnda sveitarfélagsins til umsagna.
-
5. Umsókn um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum
Mál 2602006 Allur ferill málsins
Opnað hefur verði fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðun hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Vísað til bæjarstjóra til skoðunar.
-
6. Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Mál 2601178 Allur ferill málsins
Farið yfir umsóknir um í Fiskieldissjóð.
Vísað til áframhaldandi vinnu hjá sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs.
-
7. "Hafðu áhrif - Taktu þátt". Átaksverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Mál 2602060 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem hvatt er til þáttöku einstaklinga til að bjóða sig fram til sveitarstjórna en átakið miðaðar að því að styrkja lýðræði á sveitarstjórnarstigi.
-
8. Landsþings sambandsins 23.-25.09.26
Mál 2602019 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en landsþing sambandsins verður haldið á Akureyri 23.-25. september 2026.
-
9. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Mál 2601212 Allur ferill málsins
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar