Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 31

9. febrúar 2026, kl. 14:00 til 15:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 931 liður 15

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 410 liður 5

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2510108 Allur ferill málsins

    Framlögð niðurstaða verðkönnunar vegna uppsteypu sökkla, platna og veggja í I. áfanga Íslenska stríðsárasafnsins.

    Stjórn samþykkir að tilboði lægstbjóðanda verði tekið, Launafl ehf. sem var undir kostnaðaráætlun. Stjórn leggur áherslu á að tímamörk verkþáttarins standi en þau eru í maí 2026. Vísað áfram til bæjarráðs.

  2. 2. Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk

    Mál 2601050 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að uppfærðum reglum um listaverk og listamann Fjarðabyggðar.

    Stjórn samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni og bæjarritara að uppfæra þær til samræmis við umræður á fundinum og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs.

  3. 3. Reglur um menningarstyrki

    Mál 2602064 Allur ferill málsins

    Fjallað um reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag þeirra en styrkveitingar tvöfaldast á milli ára. Framlögð drög að reglum.

    Stjórn lýst vel á reglurnar og felur forstöðumanni og bæjarritara að uppfæra þær til samræmis við umræður á fundinum. Vísað til næsta fundar stjórnar.

  4. 4. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Fjallað um endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar.

    Stjórn samþykkir tillögur að verklagi við endurskoðun menningarstefnunnar. Forstöðumaður leiðir verkefnið og leggur fyrir stjórn upplýsingar um framgang vinnunnar.

  5. 5. Verkefni menningarstofu 2026

    Mál 2602053 Allur ferill málsins

    Farið yfir verkefni menningarstofu á komandi ári, lista- og menningarhátiðina innsævi og áherslur í menningarstarfi.

    Stjórn fór yfir verkefnin.

  6. 6. Umsóknir í Safnasjóð 2025

    Mál 2510141 Allur ferill málsins

    Framlagðar niðurstöður úthlutunar safnasjóðs úr aðalúthlutun fyrir árið 2026. Öndvegisstyrkur að fjárhæð 3,5 til þriggja ára var veittur vegna verkefnisins sameining safna Fjarðabyggðar og ársstyrkur að fjárhæð 2 m.kr. vegna eftirfylgni með athugasemdum safnaráðs, viðbragðsætlanir og neyðarkistur.

    Vísað til úrvinnslu hjá menningarstofu.

  7. 7. Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands

    Mál 2511096 Allur ferill málsins

    Fjallað um málefni Sinfóníuhljómsveitar Austurlands, samstarf og fjármögnun til verkefna hennar. Stjórn fól forstöðumanni að útfæra ramma að samkomulagi um árlegt framlag til þriggja ára til eflingar starfs Sinfóníuhljómsveitar Austurlands.

    Stjórn samþykkir tillögu forstöðumanns um árlegt fast framlag að fjárhæð 1 m.kr. til þriggja ára og felur honum að útfæra samkomulagið og bæjarstjóra undirritun þess.