Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 30

20. janúar 2026, kl. 13:45 til 14:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 928 liður 19

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 20. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 409 liður 9

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu nr. 29 og 30 eru lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu nr. 29 og 30 eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2510108 Allur ferill málsins

    Framlögð hönnunargögn ásamt kostnaðaráætlun fyrir fyrsta áfanga endurgerðar Íslenska stríðsárasafnsins. Sviðsstjóri kynnti hönnun og áætlanir.

    Stjórn samþykkir að leitað verði tilboða með verðkönnun í fyrsta áfanga endurgerðar safnsins á grundvelli hönnunargagna og kostnaðaráætlunar. Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falin framkvæmd verðfyrirspurnar.