Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 29

15. janúar 2026, kl. 14:00 til 15:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 927 liður 8

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. janúar.

  • Bæjarstjórn, fundur 409 liður 8

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu nr. 29 og 30 eru lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu nr. 29 og 30 eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2510108 Allur ferill málsins

    Farið yfir framgang við I. áfanga í nýju stríðsárasafni. Sviðsstjóri fór yfir gerð verðkönnunar sem á að vera tilbúin í næstu viku.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2026

    Mál 2508192 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga forstöðumanns að ráðstöfun verkefnapotta menningarstofu og tónlistarsamnings.

    Stjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu og felur forstöðumanni útfærslu verkefna á forsendum áætlunarinnar eftir því sem verkefnum vindur fram.

  3. 3. Gjaldskrá safna 2027

    Mál 2601013 Allur ferill málsins

    Tekin til umfjöllunar gjaldskrá fyrir árið 2027 en ferðaheildsalar eru að kalla eftir upplýsingum um hana.

    Stjórn samþykkir að gjaldskrá fyrir söfn verði óbreytt á árinu 2027 en gerðar voru umtalsverðar breytingar á gjaldskrá milli áranna 2025 og 2026 og hún tók mið af viðlíka söfnum.

  4. 4. Úthlutun menningarstyrkja 2026

    Mál 2601034 Allur ferill málsins

    Fjallað um reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag þeirra en styrkveitingar tvöfaldast á milli ára.

    Stjórn felur forstöðumanni að leggja fyrir næsta fund stjórnar tillögur að uppfærðum reglum um menningarstyrki í samræmi við umræður á fundinum.

  5. 5. Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands

    Mál 2511096 Allur ferill málsins

    Fjallað um málefni Sinfóníuhljómsveitar Austurlands, samstarf og fjármögnun til verkefna hennar.

    Stjórn felur forstöðumanni að útfæra ramma að samkomulagi um árlegt framlag til þriggja ára til eflingar starfs Sinfóníuhljómsveitar Austurlands.

  6. 6. Minnismerki um Naddoð

    Mál 2512127 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Sögufélagi Austurlands um gerð og uppsetningu á minnismerki um landafundamanninn Naddoð sem sagður er hafa komið fyrstur landnámsmanna til Austurlands.

    Formanni stjórnar og bæjarritara falið að ræða við forsvarsmenn sögufélagsins.

  7. 7. Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk

    Mál 2601050 Allur ferill málsins

    Fjallað um hugmyndir að tilnefningu listamanns Fjarðabyggðar og tengja kaup á listaverkum við tilnefningu.

    Stjórn felur forstöðumanni að hefja vinnu við uppfærslu á reglum um listaverk og listamann Fjarðabyggðar og leggja fyrir stjórn til frekari umræðu.