Stjórn menningarstofu, fundur 28
15. desember 2025, kl. 14:00 til 14:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 924 liður 10
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. desember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 408 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð
Mál 2508067 Allur ferill málsins
Framhaldið umræðu um málefni bæjarhátíðanna í Fjarðabyggð. Teknar fyrir tillögur að fyrirkomulagi styrkveitinga til bæjarhátíðanna og form samstarfsins.
Stjórn samþykkir að boðaður verði samráðsfundur með forsvarsmönnum bæjarhátíðanna í lok janúar þar sem kynnt verður fyrirkomulag styrkveitinga ársins. Jafnframt mun stjórn afgreiða endalega fyrirkomulag styrkveitinga ásamt ramma að 17. júníhátíðarhöldum í janúar.
-
2. Söfnun til varðveislu Gunnfaxa TF-ISB
Mál 2511145 Allur ferill málsins
Famlagt erindi frá vinum Gunnfaxa þar sem óskað er eftir styrk til verndar flugvélinni.
Stjórn þakkar erindi en getur ekki orðið við beiðni um styrk þar sem styrkjum hefur verið úthlutað á árinu.
-
3. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2511149 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Erlu Dóru Vogler þar sem sótt er um styrk til að halda ekta nýárstónleika um miðjan febrúar 2026 þar sem fluttir yrðu vínarvalsar í samstarfi við Tónlistarmiðstöð Austurlands.
Stjórn vísar erindi til úthlutunar menningarstyrkja á árinu 2026 og felur jafnframt forstöðumanni Menningarstofu að vera í sambandi við bréfritara. Styrkúthlutunum á árinu 2025 er lokið.
-
4. Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands
Mál 2511096 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni Sinfóníjuhljómsveitar Austurlands.
Stjórn tekur jákvætt í erindið en Fjarðabyggð hefur stutt reglubundið við starfsemi hljómsveitarinnar í gegnum árin. Erindi vísað til fundar stjórnar í janúar þar sem forstöðumaður menningarstofu mun leggja fram tillögu um úthlutun fjármagns til menningarverkefna ársins.
-
5. Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2025
Mál 2511146 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga.
Formaður fór yfir málefni sem voru til umfjöllunar á aðalfundinum.