Stjórn menningarstofu, fundur 27
8. desember 2025, kl. 14:00 til 16:10, í Gamla Lúðvíkshúsi Þiljuvöllum 13. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
- Árni Pétur Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 407 liður 11
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 8. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skjalasafn Fjarðabyggðar
Mál 2409018 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda við nýtt skjala- og myndasafn Fjarðabyggðar í Gamla Lúðvíkshúsi á Norðfirði. Forstöðumaður ásamt fasteigna og framkvæmdafulltrúa fóru um húsnæðið og sýndu stjórn.
Stjórn samþykkir að nýtt skjala- og myndasafn verði opnað í Gamla Lúðvíkshúsi að Þiljuvöllum 13 á Norðfirði með formlegum hætti 22. janúar 2026 en 23. janúar 1979 samþykkti bæjarstjórn Neskaupstaðar að stofna yrði til héraðsskjalasafns fyrir Neskaupstað. Verður boðað til hófs af því tilefni.
-
2. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Farið yfir framgang undirbúning útboðs framkvæmda við fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins og kostnað sem áfallinn er vegna hönnunar og verkfræðiþjónustu. Verðkönnun vegna steypu á gólfplötum, sökklum og veggjum fer út í vikunni.
-
3. Samhæfing safna Fjarðabyggðar
Mál 2505090 Allur ferill málsins
Lögð fram greinargerð um ástand húsnæðis safna sem Guðmundur Helgi Sigfússon byggingartæknifræðingur hefur unnið sem hluta af verkefnum við samhæfingu safna. Jafnframt fjallað um framgang verkefnisins og það sem unnið hefur verið í málefnum safnanna.
Stjórn felur menningarstofu að vinna úr greinargerð áætlun um forgang aðgerða til að mæta ábendingum sem koma þar fram og rúmast innan fjárveitinga safnamála ásamt því að vísa kostnaði vegna úrbóta vegna viðhalds á húsnæði til skipulags- og framkvæmdasviðs.
-
4. Verkefni menningarstofu 2025
Mál 2501084 Allur ferill málsins
Lögð fram framvinduskýrsla Menningarstofu vegna fjórða árshluta þar sem farið er yfir starfsemina ásamt heildarsamantekt ársins 2025 og samantekt um menningarsamning Fjarðabyggðar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem Menningarstofa heldur utanum.