Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 26

11. nóvember 2025, kl. 14:15 til 15:50, Tónlistarmiðstöðin á Eskifirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 920 liður 15

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 406 liður 5

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð

    Mál 2508067 Allur ferill málsins

    Fundur með fulltrúa bæjarhátíðarinnar Neistaflugs sem fór yfir með stjórn framkvæmd og fyrirkomulag hátíðarinnar.

    Stjórn vísar málefnum bæjarhátíðanna til frekari úrvinnslu upplýsingafulltrúa og bæjarritara. Tekið upp að nýju í stjórninni til frekari úrvinnslu.

  2. 2. Málefni Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 2510038 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá stjórn Sjóminjasafns Austurlands þar sem stjórn leggur til að Fjarðabyggð taki yfir rekstur á safninu.

    Stjórn samþykkir fyrir sitt leyti að taka yfir rekstur á Sjóminjasafni Austurlands með eflingu safnsins í huga sem hluta af áætlunum Fjarðabyggðar um eflingu safna Fjarðabyggðar. Vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

  3. 3. Samningur um sýningarhönnun og sýningarstjórn Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2510077 Allur ferill málsins

    Framlögð að nýju drög að samningum um sýningarhönnun og sýningarstjórnun vegna nýrrar sýningar í Íslenska stríðsárasafninu.

    Stjórn samþykkir framlögð drög og felur bæjarstjóra undirritun samninganna.

  4. 4. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2510108 Allur ferill málsins

    Framlagðar kostnaðartölur yfir framkvæmdir við uppbyggingu Íslenska stríðsárasafnsins.

    Stjórn felur bæjarritara og formanni stjórnar að útfæra framkvæmd og verð með framkvæmdasviði.

  5. 5. Uppbyggingarsjóður 2025 - umsóknir og styrkveitingar

    Mál 2510170 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar umsóknir Menningarstofu í Uppbyggingarsjóð Austurlands en sótt er um tvö verkefni á árinu 2026, Innsævi og Upptaktinn.

  6. 6. Umsóknir í Safnasjóð 2025

    Mál 2510141 Allur ferill málsins

    Framlagðar tillögur og hugmyndir að styrkjum í safnasjóð.

    Stjórn felur verkefnastjóra og bæjarritara að vinna áfram að umsóknum og sækja um í Safnasjóð.