Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 920

17. nóvember 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 406 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 17. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2026 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2027 til 2029 lögð fram milli umræðna til afgreiðslu.

    Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana árið 2026 ásamt þriggja ára áætlun 2027 til 2029 til síðari umræðu bæjarstjórnar

  2. 2. Fjármálareglur

    Mál 2511055 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að fjármálareglum fyrir sveitarfélagið þar sem fjallað yrði m.a. um viðbrögð við frávikum frá fjárhagsáætlunum.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Innkaupareglur

    Mál 2511056 Allur ferill málsins

    Fjallað um innkaupareglur og innkaupaheimildir starfsmanna.

  4. 4. Gjaldskrá fasteignagjalda 2026

    Mál 2508185 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn vísaði álagningarstuðlum fasteignagjalda í gjaldskrá fasteignagjalda árið 2026 til frekari vinnu við fjárhagsáætlun milli umræðna.

    Bæjarráð samþykkir að vísa gjaldskrá fasteignagjalda árið 2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  5. 5. Gjaldskrá skíðasvæðis 2026

    Mál 2509093 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til bæjarráðs uppfærðri tillögu að gjaldskrá skíðasvæðisins fyrir árið 2026 með breytingum um opnun utan opnunartíma og leigu skíðaskála.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrá skíðasvæðis sem tekur gildi 1. janúar 2026.

  6. 6. Umsókn um stofnframlög til byggingar húsnæðis

    Mál 2510094 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi umsókn Brákar íbúðarfélags hses. um stofnframlag ríkisins á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. vegna kaupa á 5 íbúðum.

    Bæjarráð samþykkir stofnframlag sveitarfélagsins vegna kaupa fimm íbúða sbr. lög nr. 52/2016.

  7. 7. Samningur um farsældarráð á Austurlandi

    Mál 2511092 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi um farsældarráð Austurlands ásamt beiðni um tilnefningu fulltrúa í ráðið og varamanns hans.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans ásamt því að það tilnefndir Líneik Önnu Sævarsdóttur sem aðalmann í farsældarráð Austurlands og Aðalheiði Björk Rúnarsdóttur til vara.

  8. 8. Málefni Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 2510038 Allur ferill málsins

    Vísað frá stjórn menningarstofu tillögu þess efnis að Fjarðabyggð taki við rekstri og eignum Sjóminjasafns Austurlands.

    Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið yfirtaki rekstur og eignir Sjóminjasafns Austurlands frá og með 1. janúar 2026. Fjármálastjóra falið að skoða útfærslur vegna fjárhagsáætlunar 2026.

  9. 9. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð_2025

    Mál 2511012 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að endurskoðaðri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð sem þegar hefur verið samþykkt af skipulags- og framkvæmdanefnd.

    Bæjarráð vísar drögum að endurskoðaðri samþykkt til fyrri umræða bæjarstjórnar og frekari vinnslu í skipulags- og framkvæmdanefnd milli umræðna.

  10. 10. Viljayfirlýsing

    Mál 2511118 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að viljayfirlýsingu um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsingu og felur bæjarstjóra undirritun hennar.

  11. 11. Mannamót Markaðsstofu landshlutanna 2026

    Mál 2511014 Allur ferill málsins

    Boð á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2026 sem haldið verður 15. janúar nk.

    Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á mótið.

  12. 12. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerð 988. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.

  13. 13. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025

    Mál 2501180 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 84 lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fjölskyldunefnd - 44

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 14.1 Umsókn um restrarstyrk fyrir árið 20252509064
    2. 14.2 Lýðræðisþátttaka innflytjenda2510213
    3. 14.3 Gjaldskrá skíðasvæðis 20262509093
    4. 14.4 Jöfnunarsjóður 2025-20262510231
  15. 15. Stjórn menningarstofu - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
    2. 15.2 Málefni Sjóminjasafns Austurlands2510038
    3. 15.3 Samningur um sýningarhönnun og sýningarstjórn Íslenska Stríðsárasafnsins2510077
    4. 15.4 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
    5. 15.5 Uppbyggingarsjóður 2025 - umsóknir og styrkveitingar2510170
    6. 15.6 Umsóknir í Safnasjóð 20252510141