Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 919

11. nóvember 2025, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 406 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 11. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 2511053 Allur ferill málsins

    Fjallað um málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar.

  2. 2. Gjaldskrá fasteignagjalda 2026

    Mál 2508185 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn vísaði álagningarstuðlum fasteignagjalda í gjaldskrá fasteignagjalda árið 2026 til frekari vinnu við fjárhagsáætlun milli umræðna.

    Fjallað um gjaldskrána og vísað til áframhaldandi umræðu fyrir síðari umræðu fjárhagsáætlunar 2026.

  3. 3. Fjármálareglur

    Mál 2511055 Allur ferill málsins

    Umræða um gerð fjármálareglna fyrir sveitarfélagið þar sem fjallað yrði m.a. um viðbrögð við frávikum frá fjárhagsáætlunum.

  4. 4. Innkaupareglur

    Mál 2511056 Allur ferill málsins

    Fjallað um innkaupareglur og innkaupaheimildir starfsmanna.

    Tekið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Lagðir fram endurskoðaðir uppdrættir af skógræktarsvæði næst byggðinni á Reyðarfirði þar sem búið er að færa mörk svæðisins upp frá væntanlegum stækkunarsvæðum byggðar og taka tillit til efnistökusvæðis. Farið yfir afmörkun skógræktarsvæða og nýtingarsvæða fyrir efnisnám.

    Bæjarráð felur stjórnanda skipulags-, byggingar- og umhverfisdeildar að leggja fyrir bæjarráð endurskoðaðar tillögur að svæðum fyrir skógrækt.

  6. 6. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025

    Mál 2502102 Allur ferill málsins

    Fundagerðir 16. stjórnarfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og 165. stjórnarfundur Austurbrúar lagðar fram til kynningar.

  7. 7. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025

    Mál 2502101 Allur ferill málsins

    Fundargerð 9. fundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lögð fram til kynningar.