Bæjarráð, fundur 918
3. nóvember 2025, kl. 08:30 til 11:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 405 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 3. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
Mál 2504199 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2026 auk 3ja ára áætlunar fyrir árin 2027-2029.
Bæjarráð samþykkir tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2026 og vísar áætlun Fjarðabyggðar og stofnana til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
-
2. Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita - Jarðhiti jafnar leikinn -
Mál 2503223 Allur ferill málsins
Framlagður til staðfestingar samningur við Loftslags- og orkusjóð vegna styrks til jarðhitaleitar. Jafnfrmat fjallað um jarðhitaleit á Fáskrúðsfirði og undirbúning vegna rannsóknarborunar í landi Kappeyrar.
Bæjarráð samþykkir samning vegna styrkveitingar og felur bæjarstjóra undirritun hans. Jafnframt er bæjarstjóra falið að vinna að viljayfirlýsingu um rannsóknir og leit að jarðhita í landi Kappeyrar og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.
-
3. Skólakstur Grunnskóli Reyðarfjarðar sund 2025
Mál 2510186 Allur ferill málsins
Lögð fram tilboð í sundakstur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í framhaldi af verðfyrirspurn.
Bæjarráð samþykkir tilboði í sundakstur veturinn 2025 til 2026 og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
4. Umsókn um stækkun lóðar að Egilsbraut 8
Mál 2510215 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni um stækkun lóðar frá Húsfélaginu að Egilsbraut 8.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til úrvinnslu og jafnframt þarf að hafa samráð við Rarik.
-
5. Ágóðahlutagreiðsla 2025
Mál 2510207 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands varðandi ágóðahlut 2025.
-
6. Erindi til bæjarráðs vegna moksturs
Mál 2510200 Allur ferill málsins
Framlagt erindi vegna snjómoksturs að Vattarnesi og skólaaksturs.
Bæjarráð vísar erindi til Vegagerðar sem veghaldara en hún annast skipulag á þjónustu á veginum, þar með töldum snjóruðningi um Vattarnesskriður að Vattarnesi. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni.
-
7. Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 60
Mál 2510228 Allur ferill málsins
Fram lagðar tillögur vegna könnunar á húsnæðisþörf 60 ára og eldri.
Bæjarráð samþykkir að könnunin verði send út á grundvelli tillagna.
-
8. Reglur um leikskólaþjónustu í Fjarðabyggð
Mál 2510187 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að breyttum reglum um leikskólaþjónustu í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglurnar og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026
Mál 2509095 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
10. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2026
Mál 2509038 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
11. Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2026
Mál 2509034 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
12. Gjaldskrá rafhleðslustöðva 2026
Mál 2509032 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
13. Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2026
Mál 2509046 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá verði óbreytt á milli ára.
-
14. Gjaldskrá hitaveitu 2026
Mál 2509037 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
15. Gjaldskrá fjarvarmaveita 2026
Mál 2508189 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
16. Gjaldskrá fráveitu 2026
Mál 2509030 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
17. Gjaldskrá vatnsveitu 2026
Mál 2509101 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
18. Gjaldskrá fasteignagjalda 2026
Mál 2508185 Allur ferill málsins
Fjallað um álagningarstofna fasteignagjalda árið 2026.
Bæjarráð samþykkir að álagningarstuðlar fasteignagjalda verði óbreyttir frá árinu 2025 vegna ársins 2026 og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Tekin fyrir að nýju milli umræðna fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn með tilliti til gjaldskrár úrgangsmála.
-
19. Gjaldskrá félagsheimila 2026
Mál 2508187 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá félagsheimila á árinu 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
20. Gjaldskrá safna 2026
Mál 2508018 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir söfnin í Fjarðabyggð ásamt minnisblaði. Gerð er tillaga um samhæfingu í verðlagningu aðgangseyris og safnapassi sem gildi allt almanaksárið í öll söfn sé innifalinn í aðgangi safns.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána með breytingum og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
21. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026
Mál 2509098 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
22. Gjaldskrá þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn 2026
Mál 2509102 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
23. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2026
Mál 2509033 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026 með breytingum vegna niðurfellingar á öryggisþjónustuhnöppum.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
24. Gjaldskrá leikskóla 2026
Mál 2509041 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026. Framsetningu gjaldskrár er breytt til einföldunar en viðbótarvistunargjald ásamt gjald fyrir skráningardaga er óbreytt milli ára auk þess sem almennt vistunargjald umfram 30 stundir er lækkað í 10.000 kr.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána með breytingum en hún byggir að stofni á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
Bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Breytingar á gjaldskrá leikskóla Fjarðabyggðar sem tóku gildi í mars 2025 hafa þegar gefið góða raun. Þær hafa skapað fjölbreyttari vistunartíma og þar með dregið úr álagi starfsfólks, fækkað lokunardögum vegna manneklu og bætt aðstæður til frítöku í samræmi við kjarasamninga.
Við ákvörðun um gjaldskrárbreytinguna var tekið fram að um tilraunaverkefni væri að ræða og að árangurinn yrði metinn í framhaldi. Of skammt er síðan breytingin tók gildi til að leggja heildstætt mat á niðurstöður, en áfram verður unnið að því í samráði við starfsfólk og foreldra.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarráði vill standa vörð um þær breytingar sem hafa sýnt jákvæð áhrif, en jafnframt koma til móts við foreldra sem þurfa lengri vistunartíma. Því er lagt til að gjald fyrir 7 og 8 tíma vistun verði lækkað. Þá er ítrekað að tekið er tillit til breytinga á skráningardögum með mánaðarfyrirvara, þó æskilegt sé að foreldrar skrái með lengri fyrirvara ef þess er kostur.
Bókun Fjarðalista.
Fjarðalistinn leggur ríka áherslu á að leikskólagjöld í Fjarðabyggð séu hófleg og fyrirsjáanleg. Mikilvægt er að kostnaður við leikskóladvöl verði ekki hindrun fyrir jafnan aðgang að leikskóla, hvorki vegna tekna né vinnuaðstæðna foreldra.
Við fögnum því að tillaga að gjaldskrá fyrir árið 2026 feli í sér lækkun frá fyrri gjaldskrá fyrir 7 og 8 tíma vistun, eins og Fjarðalistinn hafði ítrekað kallað eftir. Börn sem dvelja lengst á leikskóla tilheyra oftar en ekki heimilum með minnst svigrúm til að stytta vistun vegna vinnu eða annarra aðstæðna. Slík leiðrétting er skref í rétta átt og staðfestir að fyrri gagnrýni okkar á óhóflegar hækkanir var réttmæt og nauðsynleg.
Fjarðalistinn samþykkir tillöguna en ítrekar að þrátt fyrir þessa breytingu er áfram mikilvægt að útfærsla leikskólagjalda byggi á jöfnuði, jafnrétti kynja, gagnsæi og velferð barna og fjölskyldna.
-
25. Gjaldskrá grunnskóla 2026
Mál 2509036 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
26. Gjaldskrá tónlistarskóla 2026
Mál 2509100 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs með þeirri breytingu að bætt er við 40 mínútna kennslutíma og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
27. Gjaldskrá frístundaheimila 2026
Mál 2509031 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
28. Gjaldskrá bókasafna 2026
Mál 2508182 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarjráðs tillögu að gjaldskrá bókasafna í Fjarðabyggð fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
29. Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2026
Mál 2508186 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
30. Gjaldskrá sundlauga 2026
Mál 2509099 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
31. Gjaldskrá íþróttahúsa 2026
Mál 2509040 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
32. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2026
Mál 2509039 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026 en lagt er til að þrif húsnæðis verði á kostnað leigjanda.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána með breytingum en hún byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
33. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2026
Mál 2509042 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
34. Gjaldskrá skíðasvæðis 2026
Mál 2509093 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2026 með breytingum um opnun utan opnunartíma og leigu skíðaskála.
Bæjarráð vísar gjaldskrá til frekari skoðunar milli umræðna.
-
35. Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2026
Mál 2509097 Allur ferill málsins
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir slökkvilið Fjarðabyggðar árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
36. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2026
Mál 2508188 Allur ferill málsins
Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs drögum að gjaldskrá Fjarðabyggðahafna fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar næsta árs og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2026.
-
37. Útsvar 2026
Mál 2510221 Allur ferill málsins
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2026 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Bæjarráð samþykkir að álagningarhlutfall útsvars árið 2026 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu hlutfalls.
-
38. 136.mál - frumvarp til laga um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana,
Mál 2510229 Allur ferill málsins
Framlagt til umsagnar framvarp til laga um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana 136. mál.
Bæjarráð tekur undir meginefni tillögunnar og vísar til fyrri samþykkta sinna vegna Hamarsvirkjunar.
-
39. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2025
Mál 2502155 Allur ferill málsins
Fundargerð 187. fundar Heilbrigðisnefndar lögð fram til kynningar
-
40. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 987. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
41. Fjölskyldunefnd - 43
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. október.
- 41.1 Gjaldskrá tónlistarskóla 20262509100
- 41.2 Gjaldskrá grunnskóla 20262509036
- 41.3 Gjaldskrá frístundaheimila 20262509031
- 41.4 Gjaldskrá bókasafna 20262508182
- 41.5 Gjaldskrá leikskóla 20262509041
- 41.6 Reglur um leikskólaþjónustu í Fjarðabyggð2510187
- 41.7 Gjaldskrá skíðasvæðis 20262509093
- 41.8 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 20262508186
- 41.9 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 20262509039
- 41.10 Gjaldskrá sundlauga 20262509099
- 41.11 Gjaldskrá félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar 20262508186
- 41.12 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20262509042
- 41.13 Gjaldskrá íþróttahúsa 20262509040
- 41.14 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20262509033
- 41.15 Beiðni um umsögn - Gæðaviðmið fyrir félagsþjónustu2510168