Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 44

10. nóvember 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 920 liður 14

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 406 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um restrarstyrk fyrir árið 2025

    Mál 2509064 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir umsókn kvennaathvarfsins um rekstrarstyrk fyrir árið 2026 að upphæð 200.000 kr. samkvæmt beiðni

  2. 2. Lýðræðisþátttaka innflytjenda

    Mál 2510213 Allur ferill málsins

    Lýðræðisþátttaka innflytjenda kynnt fyrir fjölskyldunefnd. Vísað til frekari kynningar í fjölmenningarráði.

  3. 3. Gjaldskrá skíðasvæðis 2026

    Mál 2509093 Allur ferill málsins

    Lagðar fram að nýju tillögur að gjaldskrá skíðasvæðis 2026 eftir breytingar á liðnum "opnun utan hefðbundins opnunartíma". Fjölskyldunefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.

  4. 4. Jöfnunarsjóður 2025-2026

    Mál 2510231 Allur ferill málsins

    Kynning fyrir fjölskyldunefnd á reglum Jöfnunarsjóðs um úthlutun vegna fatlaðs fólks og breyttum úthlutunarreglum frá 2026.