Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 25

20. október 2025, kl. 14:00 til 15:35, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 917 liður 8

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 20. október tekin til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 405 liður 7

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 20. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð

    Mál 2508067 Allur ferill málsins

    Fulltrúi bæjarhátíðarinnar Stöð í Stöð í Fjarðabyggð fór yfir með stjórn framkvæmd og fyrirkomulag hátíðarinnar.

    Stjórn vísar málefnum bæjarhátíðanna til frekari úrvinnslu upplýsingafulltrúa og bæjarritara.

  2. 2. Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum - Sjóminjasafn Austurlands

    Mál 2502162 Allur ferill málsins

    Framlögð eftirlitsskýrsla Safnaráðs vegna Sjóminjasafns Austurlands en fulltrúar stjórnar Sjóminjasafnsins sátu jafnframt fundinn.

    Stjórn menningarstofu vísar skýrslunni til stjórnar Sjóminjasafns Austurlands og verkefnastjóra safna til að vinna tillögur að ráðstöfunum vegna skýrslunnar.

  3. 3. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2510108 Allur ferill málsins

    Kynnt fyrir stjórn menningarstofu hönnun og aðaluppdrættir 1. áfanga endurbyggingar Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði.

    Stjórn samþykkir allar forsendur hönnunar sem koma fram í aðaluppdráttum og felur skipulags- og framkvæmdasviði að annast undirbúning og framkvæmd verksins. Jafnframt óskar stjórn eftir minnisblaði frá skipulags- og framkvæmdasviði um væntan kostnað verkefnisins og áfanga- og tímaáætlun þess fyrir næsta fund.

  4. 4. Gjaldskrá félagsheimila 2026

    Mál 2508187 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu.

    Stjórn samþykkti drög gjaldskrár og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.