Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 928

26. janúar 2026, kl. 08:30 til 11:25, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 409 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 927, 928, og 929 voru lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Jón Björn Hákonarson vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 12 í fundargerð 927 og var hann borinn upp sérstaklega.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 927, 928, og 929 utan liðar 12 í fundargerð 927 eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Greinargerð um framkvæmdir ársins

    Mál 2505164 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir og fjárfestingar ársins 2025.

  2. 2. Yfirlýsing Fjarðabyggðar um málefni eldra fólks

    Mál 2601125 Allur ferill málsins

    Fulltrúar öldungaráðs mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir húsnæðismál og yfirlýsingu bæjarráðs húsnæðismál.

  3. 3. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2510045 Allur ferill málsins

    Framlögð uppfærð drög að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar frá fyrri fundi.

    Bæjarráð vísar uppfærðri húsnæðisáætlun til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og samtakanna

    Mál 2510156 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurnýjuðum samstarfssamningi Fjarðabyggðar og Samtakanna ´78.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  5. 5. Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2026

    Mál 2601151 Allur ferill málsins

    Framlögð auglýsing félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026.

    Bæjarráð vísar erindi til frekari vinnslu samhliða endurskoðun á húsnæðismálum eldra fólks.

  6. 6. Minnismerki um Naddoð

    Mál 2512127 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Sögufélagi Austurlands þar sem óskað er eftir styrkveitingu til gerðar minnisvarða um Naddoð landnámsmann.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera í samskiptum við bréfritara.

  7. 7. Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar

    Mál 2504103 Allur ferill málsins

    Farið yfir valkosti vegna kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar og viljayfirlýsingar um umhverfisvæna orkugjafa. Verið er að afla frekari upplýsinga um verkefni og orkuþörf mannvirkisins.

  8. 8. Fiskeldissjóður - umsóknir 2026

    Mál 2601178 Allur ferill málsins

    Framlögð fréttatilkynning frá Fiskieldissjóði þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2026.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna að umsóknum í sjóðinn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  9. 9. Frumvarp til laga um lagareldi mál 252

    Mál 2512171 Allur ferill málsins

    Framlögð drög umsagnar um frumvarp til laga um lagareldi.

    Bæjarráð samþykkir umsögnina.

  10. 10. 322. mál samgönguáætlun 2026 til 2040 auk fimm ára aðgerðaráætlunar

    Mál 2601169 Allur ferill málsins

    Framlögð til umsagnar samgönguáætlun 2026 til 2040 ásamt aðgerðaráætlun næstu fimm ára.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  11. 11. Ferðumst saman - leiðir Austurland Akureyri

    Mál 2601181 Allur ferill málsins

    Fjallað um almenningssamgöngur frá Austurlandi til Norðurlands.

    Bæjarráð óskar eftir fundi með Vegagerðinni um leið 56, Egilsstaðir - Akureyri. Bæjarráð telur mikilvægt að Fjarðabyggð sé hluti af almenningssamgöngukerfi landsins.

  12. 12. Skilalýsing Hlunnavogur 3

    Mál 2601092 Allur ferill málsins

    Framlagt innra vinnuskjal með tillögu um tímabundin afnotaskipti á húsnæði Kubbs að Hlunnavogi 3 og húsnæðis Fjarðabyggðar að Hjallanes 8 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra undirritun samkomulags þar um.

  13. 13. Persónuverndarstefna 2026

    Mál 2601140 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri persónuverndarstefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Stefnan hefur verið yfirfarin og uppfærð lítillega til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  14. 14. Útvistunarstefna upplýsingatæknimála

    Mál 2601141 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri útvistunarstefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Stefnan hefur verið yfirfarin og uppfærð lítillega til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  15. 15. Upplýsingaöryggisstefna

    Mál 2601142 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri upplýsingaöryggisstefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Stefnan hefur verið yfirfarin og uppfærð lítillega til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  16. 16. Upplýsingaöryggismál - neyðaráætlun

    Mál 2601143 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri neyðaráætlun upplýsingatæknirekstrar fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Áætlunin hefur verið yfirfarin og uppfærð töluvert til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.

    Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  17. 17. Helstu tölur lögreglunnar á Austuralandi árið 2025

    Mál 2601179 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Lögreglustjóranum á Austurlandi um fjölda mála embættisins á árinu 2025.

  18. 18. Fjölskyldunefnd - 49

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.2 Málefni fatlaðra - Lyftusjóður2601082
    2. 18.3 Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk2512054
    3. 18.4 Ósamræmi í gjaldskrám Fjarðabyggðar2512132
    4. 18.5 Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla2601101
    5. 18.6 Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og samtakanna´782510156
    6. 18.7 Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld2601100
    7. 18.8 Fundaáætlun fjölskyldunefndar vor 20262511140
    8. 18.9 Afsláttarkjör fyrir lögreglu í sundlaugar og líkamsræktir Fjarðabyggðar2601044
    9. 18.10 Umsókn Lífsbrunnar að frístundastyrkjum Fjarðabyggðar2601052
    10. 18.11 Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)2601098
    11. 18.11 Vallavinnusamningur 20262601098
    12. 18.12 Fjölmenningarráð - 52512012F
  19. 19. Stjórn menningarstofu - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 20. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 19.1 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
  20. 20. Fjölmenningarráð - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölmenningarráðs frá 16. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    1. 20.1 Farsæld barna - samþætting þjónustu2001250
    2. 20.2 Fjölmenningarráð2510206
    3. 20.3 ÍSAT kennsla - Grunnskólar2512104
    4. 20.4 Menntun fjöltyngda leikskólabarna2512105
    5. 20.5 Lýðræðisþátttaka innflytjenda2510213