Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 49

19. janúar 2026, kl. 16:15 til 18:36, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Líneik Anna Sævarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 928 liður 18

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 409 liður 6

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá nr. 49 frá 19. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 49 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir sískráningu til Barna- og fjölskyldustofu fyrir nóvember og desember 2025 og fer yfir þróun mála.

  2. 2. Málefni fatlaðra - Lyftusjóður

    Mál 2601082 Allur ferill málsins

    Kynnt drög að reglugerð jöfnunarsjóðs sem heimilar Fasteignasjóði að úthluta framlagi vegna kaupa og uppsetninga á lyftu í húsnæði í eigu sveitarfélaga eða þar sem um er að ræða byggingar í eigu annarra aðila en sveitarfélaga þar sem um samvinnuverkefni sveitarfélaga og einkaaðila er að ræða. Þar nemur framlag Fasteignasjóðs allt að 50%. Einnig er lögð fram hækkun á heimiluðum fermetrakostnaði við byggingu.

  3. 3. Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk

    Mál 2512054 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar getur ekki orðið við beiðni um styrk að þessu sinni.

  4. 4. Ósamræmi í gjaldskrám Fjarðabyggðar

    Mál 2512132 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd tekur vel í erindið. Samræming hefur þegar átt sér stað varðandi systkinaafslátt leikskóla og frístundar. Fjölskyldunefnd felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að vinna tillögu að gjaldskrá frístundaheimila til samræmingar tekjuafsláttar.

  5. 5. Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

    Mál 2601101 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að farið verði í verkefnið og leitað til Ásgarðs skólaráðgjafar sem sveitarfélagið er nú þegar með samning við. Þegar niðurstaða greiningarinnar liggur fyrir verði hún lögð fyrir fjölskyldunefnd.

  6. 6. Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og samtakanna´78

    Mál 2510156 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs til afgreiðslu.

  7. 7. Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld

    Mál 2601100 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um aðstöðu og áhöld tengd íþróttahúsi Reyðafjarðar sem þarf að laga til að húsið nýtist sem best. Málinu vísað áfram til skipulags og framkvæmdanefndar.

  8. 8. Fundaáætlun fjölskyldunefndar vor 2026

    Mál 2511140 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd fór yfir drög að fundaáætlun fjölskyldunnefndar fyrir fyrri hluta ársins 2026.

  9. 9. Afsláttarkjör fyrir lögreglu í sundlaugar og líkamsræktir Fjarðabyggðar

    Mál 2601044 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að ræða við bréfritara.

  10. 10. Umsókn Lífsbrunnar að frístundastyrkjum Fjarðabyggðar

    Mál 2601052 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að Lífsbrunnur geti tekið við frístundastyrk Fjarðabyggðar vegna félagsfærninámskeiða, enda uppfylli starfsemin markmið reglna Fjarðabyggðar um frístundastyrk til barna og unglinga og öll form- og framkvæmdarskilyrði reglnanna, þar á meðal skráningu og uppgjör í Abler. Samþykkið byggir á því að frístundastyrkurinn styðji þátttöku barna og unglinga í uppbyggilegu frístundastarfi og efli félagsþátttöku. Stjórnanda íþrótta og frístundamála er falið að ganga frá samstarfi og framkvæmd í samræmi við reglurnar.

  11. 11. Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)

    Mál 2601063 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir uppfærð drög að reglum Fjarðabyggðar um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til skóla, íþróttafélaga og almennings, ásamt tilheyrandi verkferlum. Reglurnar taka gildi við birtingu og verður innleiðingu þeirra fylgt eftir af stjórnanda íþrótta og frístundamála í samráði við forstöðumenn íþróttamannvirkja.

  12. 11. Vallavinnusamningur 2026

    Mál 2601098 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að uppfæra samninginn í samræmi við umræður á fundinum. Lagt fyrir að nýju á næsta fundi.

    Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.

  13. 12. Fjölmenningarráð - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð fjölmenningaráð lögð fyrir fjölskyldunefnd.

    1. 12.1 Farsæld barna - samþætting þjónustu2001250
    2. 12.2 Fjölmenningarráð2510206
    3. 12.3 ÍSAT kennsla - Grunnskólar2512104
    4. 12.4 Menntun fjöltyngda leikskólabarna2512105
    5. 12.5 Lýðræðisþátttaka innflytjenda2510213