Fjölskyldunefnd, fundur 48
8. desember 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Sigurjón Rúnarsson, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Líneik Anna Sævarsdóttir
- Magnús Árni Gunnarsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 407 liður 10
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2025-2026
Mál 2511110 Allur ferill málsins
Starfsáætlun Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla fyrir skólaárið 2025-2026 lögð fram og fylgt eftir með stuttri kynningu skólastjóra. Þar með hafa starfsáætlanir allra leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð fyrir skólaárið verið kynntar ásamt skólanámskrá Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Fjölskyldunefnd staðfestir starfsáætlanirnar, felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að koma nokkrum ábendingum á framfæri og þakkar skólastjórnendum upplýsandi samtal um skólastarfið.
-
2. Starfamessa Austurlands 2026
Mál 2512042 Allur ferill málsins
Undirbúningur starfamessu Austurlands 2026 er hafinn með samtölum milli starfsmanna sveitarfélaganna, framhaldsskólanna, Austurbrúar og SSA. Starfamessa kynnt og ákveðið að kalla eftir sjónarmiðum ungmennaráðs Fjarðabyggðar varðandi starfamessu. Vísað til umsagnar í ungmennaráði og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna áfram að undirbúningi.
-
3. Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði
Mál 2510033 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um áhrif þess að nýta gamla íþróttasalinn á Reyðarfirði undir padelvöll. Fjölskyldunefnd líst vel á hugmynd um padelvöll en bendir á að hverju þarf að hyggja ef settur verður upp padelvöllur. Málinu vísað til bæjarráðs.
-
4. Samtarf skíðasvæðanna Oddskarðs og Stafdals 2024
Mál 2401096 Allur ferill málsins
Lagt er fram til samþykktar samstarfssamkomulag milli Fjarðabyggðar og Múlaþings um rekstur aðgangsstýringar- og vefsölukerfis fyrir skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal.
Fjölskyldunefnd samþykkir samstarfssamkomulagið fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
-
5. Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2025
Mál 2511181 Allur ferill málsins
Stjórnandi íþrótta- og frístundamála kynnti tilnefningar til hvatningaverðlauna- og íþróttamanneskju Fjarðabyggðar. Rafræn kosning stendur til kl. 16.00 þann 10. desember. Aðal- og varamenn fá aðgang að rafrænni kosningu.
Viðurkenningar verða veittar kl. 15.00 þann 3. janúar 2026 í Safnahúsinu í Neskaupstað. Deildarstjóri íþrótta- og tómstundamála fær niðurstöður frá nefndarmönnum og er honum falið að skipuleggja verðlaunaafhendingu og viðburð.