Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 47

1. desember 2025, kl. 16:00 til 18:24, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Sigurjón Rúnarsson, varamaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 923 liður 10

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 1. desember lögð fram til umfjöllunar og afreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 407 liður 9

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 1. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2025-2026

    Mál 2511110 Allur ferill málsins

    Starfsáætlanir eftirtalinna: leikskólans Lyngholts, leikskólans Dalborgar, leikskólans Eyrarvalla og Grunnskóla Reyðarfjarðar, fyrir skólaárið 2025-2026 lagðar fram og þeim fylgt eftir með stuttri kynningu skólastjórnenda.

  2. 2. Til fjölskyldunefndar Afsláttur af tónskólagjöldum.

    Mál 2511224 Allur ferill málsins

    Erindi til fjölskyldunefndar um afslátt af tónskólagjöldum til eldri borgara. Fjölskyldunefnd telur ekki ástæðu til þess að veita afslátt af tónskólagjöldum til eldri borgara að svo stöddu og felur sviðstjóra að svara erindinu.

  3. 3. Umsókn um styrk vegna Norræna menningarhátíð heyrnarlausra

    Mál 2511152 Allur ferill málsins

    Umsókn um styrk vegna Norrænnar menningarhátíðar heyrnarlausra lögð fram. Fjölskyldunefnd getur því miður ekki styrkt þetta verðuga málefni að þessu sinni.

  4. 4. Firmakeppni í hraðskák 2025

    Mál 2511190 Allur ferill málsins

    Beiðni frá Skáksambandi Austurlands var kynnt. Því miður getur Fjarðabyggð ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.