Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 46

24. nóvember 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 922 liður 9

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 24. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 407 liður 8

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2025-2026

    Mál 2511110 Allur ferill málsins

    Skólanámskrá tónlistaskóla Fjarðabyggðar, fyrir skólaárið 2025-2026, lögð fram og henni fylgt eftir með stuttri kynningu skólastjórnanda.

  2. 2. Erindi frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þar sem óskað er eftir því að sveitarfélög samþykki sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla vorið 2026.

    Mál 2511144 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla vorið 2026, í samræmi við erindi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu dags. 17. nóvember 2025.

    Þá fagnar nefndin því að nemendagrunnurinn verði tekinn í notkun um næstu áramót.

  3. 3. Niðurstöður Skólapúlsins 2025

    Mál 2511147 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti niðurstöður úr Skólapúlsi grunnskólanna í Fjarðabyggð frá vori og hausti 2025. Unnið er með niðurstöður könnunarinnar innan hvers skóla, eins og gert verður grein fyrir í umbótaáætlun hvers skóla. Niðurstöður úr nemendakönnun í 6.-10.b., ásamt umbótaáætlun verða birtar á heimasíðum skólanna.

  4. 4. Frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd

    Mál 2511141 Allur ferill málsins

    Drög að nýju frumvarpi til laga um barnavernd kynnt fyrir fjölskyldunefnd.

  5. 5. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fer yfir sískráningu í barnavernd og þróun mála.

  6. 6. Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði

    Mál 2510020 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráð til fjölskyldunefndar erindi rá Helgu Rún Jóhannsdóttur um gerð Padel vallar í eldri íþróttasalnum í íþróttahúsinu á Reyðarfirði.

  7. 7. Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ

    Mál 2511099 Allur ferill málsins

    Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ til sveitarfélaga um að efla enn frekar lýðheilsu. lögð fram til kynningar. Fjölskyldunefnd fagnar hvatningunni.

  8. 7. Sterkur Stöðvarfjörður - beiðni um lengingu opnunartíma sundlaug Stöðvarfjarðar

    Mál 2310110 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um samvinnu um opnunartíma sundlauga á Fáskrúðs- og Stöðvarfirði. Nefndin leggur til þá breytingu frá því sem fram kemur í minnisblaðinu að opna sundlaugina á Fáskrúðsfirði fyrr eða kl: 15:00-20:00 á föstudögum. Sviðstjóra falið að koma breytingunum á framfæri til íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar.

  9. 9. Öldungaráð - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð öldungaráðs lögð fyrir fjölskyldunefnd til samþykktar

    1. 9.1 Kynning frá Janusi heilsueflingu fyrir öldungaráð2511047
    2. 9.2 Erindi frá öldungaráði Fjarðabyggðar til færni- og heilsumatsnefndar2511031
    3. 9.3 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
    4. 9.4 Erindisbréf öldungaráðs1610001
  10. 10. Fjölmenningarráð - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð fjölmenningaráðs lögð fyrir fjölskyldunefnd til samþykktar

    1. 10.1 Erindisbréf fjölmenningarráðs2303056
    2. 10.2 Lýðræðisþáttaka innflytjenda2510213
    3. 10.3 Íbúaþing2509128
    4. 10.4 Móttaka nýrra íbúa í Fjarðabyggð2510063