Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 922

1. desember 2025, kl. 09:00 til 09:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Kristinn Þór Jónasson, varamaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 407 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 1. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Greinargerð um framkvæmdir ársins

    Mál 2505164 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu í framkvæmdum ársins hjá Fjarðabyggð og stofnunum á árinu 2026.

  2. 2. Lækjarkanntavarnir vegna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar

    Mál 2511191 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Sigga Jenssyni vegna bakkavarna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar.

    Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs í samstarfi við Ofanflóðasjóð.

  3. 3. Styrkveiting Fjarðabyggðar í jólasjóð 2025

    Mál 2511205 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um framlag til jólasjóðsins í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja jólasjóðinn sem nemur 700.000 kr.

  4. 4. Skólaakstur í gegnum Kambanesskriður

    Mál 2511209 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Helgu Rakelar Arnardóttur um hálkuvarnir í Kambanesskriðum.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni.

  5. 5. Fiskeldi í Mjóafirði

    Mál 2511234 Allur ferill málsins

    Ályktun bæjarráðs vegna áforma atvinnuvegaráðherra um fiskeldi í Mjóafirði.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar því að atvinnuvegaráðherra hafi falið Hafrannsóknarstofnun að gera burðarþolsmat og tillögur að eldissvæðum fyrir laxeldi í Mjóafirði til að hægt sé að bjóða þau út í framhaldi af því. Eindregin samstaða hefur verið í bæjarstjórn Fjarðabyggðar og meðal íbúa Mjóafjarðar um að hefja skuli laxeldi þar að nýju og styrkja þannig ennfrekar öflugt atvinnulíf í sveitarfélaginu sem er undirstaða velferðar í því. Er það von bæjarráðs að kraftur verði settur í verkefnið og hægt verði að bjóða út leyfin á komandi ári.

  6. 6. Fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    Mál 2401200 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar niðurstaða stýrihóps um eignarhald hjúkrunarheimila vegna breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

    Bæjarráð vísar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 fyrirhuguðum breytingum vegna yfirfærslu eignarhluta sveitarfélagsins í hjúkrunarheimilum til ríkisins.

  7. 7. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026

    Mál 2205172 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur vegna breytinga í kjörstjórn á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að Snorri Styrkársson taki við formennsku í undirkjörstjórn á Reyðarfirði í stað Andreu Borgþórsdóttur sem tekur sæti varamanns í kjörstjórninni.

  8. 8. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerð 989. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fjölskyldunefnd - 46

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 24. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 9.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2025-20262511110
    2. 9.2 Erindi frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þar sem óskað er eftir því að sveitarfélög samþykki sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla vorið 2026.2511144
    3. 9.3 Niðurstöður Skólapúlsins 20252511147
    4. 9.4 Frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd2511141
    5. 9.5 Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla2003044
    6. 9.6 Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði2510020
    7. 9.7 Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ2310110
    8. 9.7 Sterkur Stöðvarfjörður - beiðni um lengingu opnunartíma sundlaug Stöðvarfjarðar2310110
    9. 9.9 Öldungaráð - 212511008F
    10. 9.10 Fjölmenningarráð - 42510022F
  10. 10. Öldungaráð - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 21. október tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 10.1 Heimsókn fulltrúa öldungaráðs á hjúkrunarheimilið Hulduhlíð2510139
    2. 10.2 Heimsókn fulltrúa öldungaráðs til félags eldra fólks á Eskifirði2510136
    3. 10.3 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
  11. 11. Öldungaráð - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 10. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 11.1 Kynning frá Janusi heilsueflingu fyrir öldungaráð2511047
    2. 11.2 Erindi frá öldungaráði Fjarðabyggðar til færni- og heilsumatsnefndar2511031
    3. 11.3 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
    4. 11.4 Erindisbréf öldungaráðs1610001
  12. 12. Fjölmenningarráð - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölmenningarráðs frá 18. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 12.1 Erindisbréf fjölmenningarráðs2303056
    2. 12.2 Lýðræðisþáttaka innflytjenda2510213
    3. 12.3 Íbúaþing2509128
    4. 12.4 Móttaka nýrra íbúa í Fjarðabyggð2510063