Fiskeldi í Mjóafirði
Mál 2511234 Fyrst á dagskrá 1. desember 2025, síðast 11. desember 2025. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: MjóifjörðurSjávarútvegur og fiskeldi
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2025
Bæjarráð, fundur 922 liður 5
Ályktun bæjarráðs vegna áforma atvinnuvegaráðherra um fiskeldi í Mjóafirði.
Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar því að atvinnuvegaráðherra hafi falið Hafrannsóknarstofnun að gera burðarþolsmat og tillögur að eldissvæðum fyrir laxeldi í Mjóafirði til að hægt sé að bjóða þau út í framhaldi af því. Eindregin samstaða hefur verið í bæjarstjórn Fjarðabyggðar og meðal íbúa Mjóafjarðar um að hefja skuli laxeldi þar að nýju og styrkja þannig ennfrekar öflugt atvinnulíf í sveitarfélaginu sem er undirstaða velferðar í því. Er það von bæjarráðs að kraftur verði settur í verkefnið og hægt verði að bjóða út leyfin á komandi ári.
-
Bæjarstjórn, fundur 407 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 922“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.