Yfirlýsing Fjarðabyggðar um málefni eldra fólks
Mál 2601125 Fyrst á dagskrá 19. janúar 2026, síðast 5. febrúar 2026. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 5. febrúar 2026, frá 0:14:00 og 5 kaflar til viðbótar í ferlinum
Í hnotskurn
Bæjarráð lagði fram yfirlýsingu, undirritaða af oddvitum allra framboða, um vilja sveitarfélagsins til að fjölga hjúkrunarrýmum, efla dagdvöl og byggja upp húsnæði fyrir eldra fólk í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld. Í yfirlýsingunni kemur fram að hún sé viljayfirlýsing en ekki lokaniðurstaða, og að sveitarfélagið hafi ekki úthlutað íbúðum í Breiðabliki nýverið og leggi áherslu á að svör frá ráðuneytinu berist sem fyrst1.
Staðan
Bæjarstjórn hefur staðfest fundargerðir bæjarráðs um málið og sveitarfélagið bíður svara frá ráðuneytinu41.
Úr umræðu í bæjarstjórn
Fram kom í máli fulltrúa að yfirlýsingunni væri ætlað að lýsa sýn sveitarfélagsins í samtali við stjórnvöld og HSA, og að beðið hefði verið eftir svörum frá ráðuneytinu sem hefðu dregist, meðal annars vegna ráðherraskipta1. Greint var frá því að á fundi með öldungaráði hefði verið farið yfir niðurstöður húsnæðiskönnunar fyrir 60 ára og eldri, sem einnig hefði verið kynnt byggingaraðilum2. Á fundi með forstjóra HSA hefði verið rætt um þörf fyrir hjúkrunarrými og uppbyggingu dagdvalar3. Einnig kom fram að um málið hefði ríkt þverpólitísk samstaða og að ef svör berast yrði hægt að úthluta íbúðum í Breiðabliki til þeirra sem bíða6.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan og þríhyrningur í upptöku. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2026
Bæjarráð, fundur 927 liður 5
Lögð var fram yfirlýsing oddvita allra framboða um stækkun Hulduhlíðar, endurbætur á Uppsölum, uppbyggingu dagdvalar og framtíð Breiðabliks, þar sem fram kemur að engar breytingar séu fyrirhugaðar fyrir núverandi íbúa Breiðabliks og að horft sé til leigufélagsins Bríetar sem mögulegs samstarfsaðila. Fulltrúar Fjarðalistans lögðu fram bókun um að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um eignarhald eða rekstrarform Breiðabliks og að slíkar ákvarðanir ættu að koma sérstaklega fyrir bæjarstjórn.
Endursögn gervigreindar
Yfirlýsing Fjarðabyggðar vegna uppbyggingar og eflingar þjónustu við eldri borgara.
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir hér með skýrri stefnu og vilja sveitarfélagsins um uppbyggingu og eflingu þjónustu við eldri borgara. Um er að ræða metnaðarfulla framtíðarsýn sem felur í sér fjölgun hjúkrunarrýma, eflingu dagdvalarþjónustu og markvissa uppbyggingu húsnæðis, í nánu samstarfi við heilbrigðisyfirvöld. Þetta er viljayfirlýsing sveitarfélagsins og liður í virku samtali við stjórnvöld um að ná þessum markmiðum fram.
Lesa alla bókunina (844 orð til viðbótar)
Sveitarfélagið hefur unnið að þessum málum af festu um nokkurt skeið. Samtal Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) hófst formlega árið 2023 með sameiginlegri umsókn í þróunarverkefnið Gott að eldast. Síðan þá hafa farið fram tugir funda, vinnustofur með ráðuneytum, opnir kynningarfundir í samfélaginu og ítarleg greining á þjónustuþörf. Þetta er því ekki verið að ganga frá framkvæmdum, heldur að móta sameiginlega og vel rökstudda stefnu sem sveitarfélagið vill vinna eftir og berst fyrir gagnvart ríkinu.
Í viljayfirlýsingu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og Fjarðabyggðar, sem undirrituð var fyrir áramót, var kveðið á um greiningu á húsnæðisþörf 60 aldurshópsins. Sú greining liggur nú fyrir og verður kynnt fyrir byggingarverktökum og er aðgengileg á vef sveitarfélagsins. Niðurstöðurnar sýna skýrt að þörf er á fjölbreyttu, aðgengilegu og hagkvæmu húsnæði fyrir eldra fólk til framtíðar.
Breiðablik - framtíðarsýn byggð á öryggi og samfellu þjónustu
Bæjarráð leggur áherslu á að efla Breiðablik til framtíðar, með hag núverandi íbúa að leiðarljósi. Þar er horft til mögulegrar aðlögunar húsnæðis að breyttum þjónustuþörfum og einnig til breytinga á eignarhaldi, ef slíkt reynist farsæl leið til að styrkja rekstrargrundvöll og skapa svigrúm til framtíðaruppbyggingar.
Áréttað er með skýrum hætti að engar breytingar eru fyrirhugaðar fyrir núverandi íbúa Breiðabliks. Allar breytingar eru hugsaðar til framtíðar, unnar í áföngum og í takt við hækkandi lífaldur og breyttar þarfir íbúanna. Markmiðið er að þjónustan þróist með fólkinu, en ekki að fólk þurfi að laga sig að kerfinu.
Með þessari sýn er stefnt að því að bæta þjónustu, öryggi og aðbúnað til lengri tíma, meðal annars með möguleikum á meiri þjónustu og hjúkrun innan sama húsnæðis ef og þegar þörf skapast. Slík nálgun styður við samfellu í þjónustu, eykur öryggistilfinningu og bætir lífsgæði.
Í því samhengi er horft til samstarfs við óhagnaðardrifið leigufélag, Bríet, í eigu opinberra aðila, sem mögulegan samstarfsaðila til framtíðar, enda byggir slíkt fyrirkomulag á félagslegum, ábyrgum og langtímamiðuðum forsendum. Jafnframt stendur til að vinna nánari greiningu á lóð og húsnæði Breiðabliks með tilliti til mögulegrar stækkunar síðar, fyrst og fremst til að mæta fyrirsjáanlegri þörf og draga úr biðlistum ? án þess að raska núverandi búsetu eða þjónustu. Sökum þessara vinnu hefur Fjarðabyggð ekki úthlutað íbúðum í Breiðablik nýverið og þess vegna leggur sveitarfélagið ríka áherslu á að svör frá ráðuneytinu liggi fyrir sem allra fyrst.
Hulduhlíð - vilji til fjölgunar hjúkrunarrýma
Bæjarráð lýsir einnig skýrum vilja til verulegrar stækkunar Hulduhlíðar á Eskifirði. Núverandi húsnæði býður aðeins upp á mjög takmarkaða stækkun og því er unnið, í samtali við HSA og Heilbrigðisráðuneytið, að því að skoða deiliskipulagsbreytingar og aðrar leiðir sem gera kleift að fjölga hjúkrunarrýmum, bæta rýmiskosti og styrkja starfsaðstöðu til framtíðar. Þetta er lykilforsenda þess að mæta vaxandi þörf og vinna markvisst niður biðlista.
Uppsalir - betri nýting fyrir framtíðina
Á sama tíma er vilji til að ráðast í endurbætur á Uppsölum í Fáskrúðsfirði, með það að markmiði að nýta betur eldri hluta húsnæðisins. Með slíkum endurbótum væri hægt að ná fram betri nýtingu og styrkja Uppsali sem fullbúið hjúkrunarheimili til framtíðar, í samvinnu við HSA og heilbrigðisyfirvöld.
Dagdvalarþjónusta - lykilþáttur í heildstæðri lausn
Samhliða fjölgun hjúkrunarrýma leggur bæjarráð ríka áherslu á uppbyggingu dagdvalarþjónustu í samvinnu við HSA í gegnum verkefnið Gott að eldast. Dagdvöl er þjónusta þar sem eldri borgarar koma yfir daginn, fá félagslegan stuðning, hreyfingu, máltíðir og umönnun, en búa áfram heima. Slík þjónusta eykur lífsgæði, dregur úr einangrun, styður sjálfstæða búsetu lengur og getur frestað eða komið í stað dvalar á hjúkrunarheimili. Greining á umfangi, staðsetningu og eftirspurn dagdvalarþjónustu er hluti af þeirri stefnumótun sem nú stendur yfir.
Skýr vilji og barátta fyrir framtíðinni
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur áherslu á að hér er um að ræða skýra stefnu og vilja sveitarfélagsins, byggða á faglegri greiningu og raunverulegri þörf. Þetta er ekki lokaniðurstaða heldur viljayfirlýsing og barátta sveitarfélagsins gagnvart stjórnvöldum um að ná fram þeirri uppbyggingu sem eldri borgarar í Fjarðabyggð eiga rétt á.
Þetta er framtíðarsýn sem miðar að öryggi, reisn og mannsæmandi aðbúnaði og mikilvægt skref til framtíðar.
Oddvitar allra framboða í Fjarðabyggð
Bókun fulltrúa Fjarðalistans.
Fjarðalistinn styður markmið sveitarfélagsins um að efla þjónustu við eldra fólk í Fjarðabyggð, tryggja samfellu í þjónustu og vinna markvisst að fjölgun hjúkrunarrýma, uppbyggingu dagdvalar og aðgengilegs húsnæðis til framtíðar t.d. með byggingu þjónustuíbúða.
Fjarðalistinn leggur jafnframt ríka áherslu á að staða, réttindi og búsetuöryggi núverandi íbúa Breiðabliks séu ófrávíkjanleg. Engar breytingar á búsetu, þjónustu eða aðstæðum núverandi íbúa koma til greina og skal það vera skýrt að allar hugmyndir um þróun eða aðlögun Breiðabliks snúa eingöngu að framtíðinni.
Fjarðalistinn áréttar að engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingar á eignarhaldi, rekstrarformi eða fyrirkomulagi Breiðabliks. Slíkar ákvarðanir, ef til þeirra kemur, skulu byggja á frekari greiningu, opnu og gagnsæju samráði við íbúa, aðstandendur og starfsfólk og verða lagðar sérstaklega fyrir bæjarstjórn til formlegrar afgreiðslu.
Fjarðalistinn telur mikilvægt að uppbygging öldrunarþjónustu byggi á félagslegum og óhagnaðardrifnum forsendum, þar sem öryggi, mannúð og langtímahagsmunir samfélagsins eru hafðir að leiðarljósi, en ekki skammtímasjónarmið.
Fjarðalistinn vill áfram leggja sitt af mörkum til málefnalegrar og ábyrgðarfullrar umræðu um framtíð þjónustu við eldra fólk, þar sem samráð og virðing fyrir fólkinu sem þjónustan snýr að eru í fyrirrúmi.
-
Bæjarráð, fundur 928 liður 2
Fulltrúar öldungaráðs mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir húsnæðismál og yfirlýsinguna.
Endursögn gervigreindar
Fulltrúar öldungaráðs mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir húsnæðismál og yfirlýsingu bæjarráðs húsnæðismál.
-
Bæjarráð, fundur 929 liður 2
Farið var yfir stöðu húsnæðismála eldra fólks með forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Endursögn gervigreindar
Farið yfir stöðu húsnæðismála eldra fólks með forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
-
Bæjarstjórn, fundur 409 liður 1.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 927“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 409. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:14:00 á henni farin að ganga ansi hratt á bakkana þar varðandi lið eitt fimm þarna var verið að fara yfir yfirlýsingu fjarðarbyggðar um málefni eldra fólks og þarna erum við í rauninni að ramma upp það samtal sem við höfum átt bæði við stjórnvöld og heilbrigðarstofnun austurlands og erum þarna í
- 0:14:28 erum þarna í rauninni að sýna fram á okkar sýn varðandi fjölgun á eflingu á hjúkrunarrýmum og dagvistunarúræðum og við erum með þessu að hafa áhrif á ákvarðanartöku stjórnvalda og heilbrigðisstofnunarinnar varðandi uppbyggingu sjúkrahússins og uppbyggingu hjúkrunarríma og þarna er mjög mikilvægt að við sýnum fram á okkar vilja og okkar sýn til þess að bregðast við þeim að
- 0:14:56 til þess að bregðast við þeim aðstæðum sem komnar eru upp og við höfum verið mjög lengi í þessu samtali og hefðum gjarnan viljað opinbera um allar þær fyrirætlanir sem hafa staðið af hendi hsa þarna uppi en vildum aftur á móti bíða eftir að ná fram einhverjum svörum frá ráðuneytinu en vegna ráðherra skipta og annarra þá verður dráttur þar á
- 0:15:24 drátt úr þar á og mikilvægt að við svona gefum eitthvað frá okkur vegna þess að við höfum ekki verið til dæmis að leigja útlausar íbúðir í hérna breiðablik og þá með þessu þá erum við að sýna framsýni við erum að sýna að við séum með lausnir og við séum mef hugmyndir sem við erum tilbúin að koma að borðinu og vera í samstarfi viðhluta enda aðila um
Upptaka bæjarstjórnarfundar 409. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:15:52 við hlutum enda aðallega um og í stað þess að bíða bara með hendur í skauti og láta tíma leiða í ljós hvað verður varðandi fundargeir bæjarásson með níundruð tuttugu og átta þá áttum við þar í lið tvö fund með öldungaráði fjarðarber einmitt um þetta sama efni þar vorum við að fara yfir
- 0:16:20 þar vorum við að fara yfir yfirlýsinguna og þessi samtöl sem við höfum átt við stjórnvöld sama skapi fórum við yfir húsnæðiskönnun eldra fólks sextíu ára plús sem var gerð fyrir skömmu og vorum þar að fara ymir niðurstöður könnunarinnar en hún hefur jafnframt verið í kynningu hjá byggingaraðilum
- 0:16:48 byggingaraðilum sveitarfélagsins þar sem er verið að hvetja þá til þess að horfa til þessarar könnunar og leita leiða til þess ath fara í húsbyggingar sem væru þá vænlegar til handa eldra fólki sextíu ára plús
Upptaka bæjarstjórnarfundar 409. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:18:40 en stærsti hluti samtalsins fór í að ræða verkefnin sem að tengjast þá þörfinni á hjúkrunarplássi í sveitarfélaginu og okkar sameiginlegu sýni í þeim efnum og meðal annars uppbyggingu á dagvistunarúrræðum og hvar við myndum koma því fyrir þannig að það er svona verið að halda áfram að kortleggja þetta og jafnframt var farið þar yfir þau samdar
Upptaka bæjarstjórnarfundar 409. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:19:08 farið þar yfir þau samtal sem sveitarfélagið hefur átt við stjórnvöld um uppbyggingu á því og við fylgdum því svo eftir í næsta lið þar sem sviðstjóri sat undir þeim liða númer þrjú og tvö þar kom forstjóri háa saga í heimsókn og þar vorum við að fara svona yfir þau samtöl sem við höfum annars vegar átt við heilbrigðarstofnunina samtöl sem að heilbrigðari stofnun hefur átt vi við stjórntvöld
- 0:19:36 fjölskyldustofnun hefur átt við við stjórnvöld og og svona næstu skref í í þeim efnum fleira ætla ég ekki að fara yfir í bili
Upptaka bæjarstjórnarfundar 409. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:21:00 fyrir þessu og bara á meðan ég fagna þessum áfanga þá veldur þessi bara mikilvægt að hérna það verði ávallt að lagt á að fylgja honum eftir svo þjónustan nýtir jafnt yfir allt sveitarfélagið aðeins undir fundagerð bæjaráðs númer níu hundruð tuttugu og níu fara þar undir mál þrjú tö sem svo sem teyranga sína í
- 0:21:28 sem svo sem teygir anga sína í fleiri fundagerðir en þetta er yfirlýsing ferðabæjarmálum eldra fólks þarna var verið að fara yfir eins og stöðu eins og ragnar svo sem kom inn á og kannski það vísar líka í fundi sem mátti með öldökun á þessu sem var mjög góður og upplýsandi og svona hluti af þessu ferli sem er í gangi og nauðsynlegt að taka þessu fundi svo að það sé svona allir séu sæmulega upplýstir um stöðuna og svona hvernig hún er
Upptaka bæjarstjórnarfundar 409. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:23:48 þú skaltir fá að taka stuttlega til máls undir sem við tengslum við og svo ragnar kom svo kallið inn á stefánarnir þá vinnu sem hefur verið í er tengist húsnæðismálum og felur í sér þessi liður sem hefur verithjákursvistri um fundur sem kallast
- 0:24:16 ég hef verið hér í mikilli þverpólitísk sátt mjög lengi um það hvernig við höfum reynt að sækja fram í þessum efnum og hefur verið svona þungt undirvitað hefur það á tímabili náttúrlega lá það fyrir frá því að ný hulduhlíð tekur hér
- 0:24:44 tekur hér eða lýkur hér er lokið að byggja nýja huldulífði og tekin notkun þá hefur náttúrlega biðlistar á austurlandi verið meðaltalið styttri eftir hjúkrunarheimilisprósentunni annast á landinu en engu að síður eru biðlistar og við vitum það öll og höfum séð það mjög lengi að um allt land hefur verið gríðarleg eftir þörf og eftirspurn eftir hjúkurarími og því miður þá hefur það einný líka
- 0:25:12 miður þá hefur það einnig líka sést og ekki dvíist neinum að sú uppbyggð hefur gengið miklu hægar og ekkert borð á land heldur einnig í reykjavík einnig heldur en ætla var með í tíð stjórnvalda hvaða stjórnvald sem það eru eða sem til hverjir sem það hafa myndað ríkisstjórn það hefur þetta verið ákveðið áhyggjuefni og við höfum eft að haft að því áhyggjur að við megum alls ekki að þó að einhæ undir mundi verð við þa má ekki verð það að að við missum hjúrými út á svæðinu einni
- 0:25:40 vissum hjúkrunarrými út á svæðum leitni á sama tíma og við auðvitað horfum til eins og viljum styðja og styrkja við það að þjónusta aukist væri fjölbreyttari á undanmiðsjúkrahúsinu í norskum stað sem þar voru meira rými undir bara mjög nauðsynlega þjónust sem hún veitir og þess vegna hefur eins og kom fram hjá ragnari og stefán höfum við einmitt lagt á áherslu þó að málaflokkurinn sé ríkisins að reyna að stíga inn í þa meðlun
- 0:26:08 að reyna að stíga inn í það með lausnir til þess að verja þá þau rýmishöfum ofanleit að ýta undir það við fáum frekari uppbyggingu í fjararpið áhyggjurímum því að eins og ég sagði að hún þó listarnir hafi verið styttir hérna þar þá hafa lengst út um meðaltímann hefur lengst og við hefðum kosið að vera komin þau svör fyrr til þennan við gætum fleira farið út og kynnt þetta enn ítarlegra fyrir
- 0:26:36 enn ítarlegra fyrir eins og íbúum breiðabliks og annað slíkt en auðvitað það er erfitt eins og við kemum fram í að gera það þegar við höfum ekki endanleg svör í hendi það voru fundir í gær inn í stýrihópum sem bæjarstjóri hefur fylgt eftir mjög af miklum krafti að stýrihópu um uppbyggingu bjúkrunarheimila og þeirra og vonandi berast hann einhver tíðindi þegar við þurfum að fara að geta stigið þá næstu skref hvert sem við ættum að halda
- 0:27:04 hvert sem við ætlum að halda ef ríkið ætlar ekki að þiggja þessar lausnir þá sem við þekktum í áhugavert ef það er ekki og ég trúi eiginlega hér að vegna sagði ráðherra og ráðherra fyrrverandi félagsráðherra sem er ennþá samt með málfríkin hefur sýnt hið mikinn stuðninga að hér séu stigin skref í sögu að þá verðum við getum að farið að útlitaíbúðum breiðabliki þá bara til þegar
- 0:27:32 útlendaíbúðin breiðablikir þá bara til þeirra sem þar bíða eftir leigurými og vonandi getum við á næstu bara mjög fljótlega farið hérna að kynnetta og farið að sjá til lands í þessum efnum þannig að ég ég held að hérna það sé mikilvægt og það sem þetta býr að baki sveitarfélaginu
- 0:28:00 þetta býr að baki sveitarfélaginu auðvitað bara það að tryggja hér aukið hér sé nægilegt að hjúkrunarrými og það sé og við getum horft til framtíðar með þá jafnframt uppbyggingu við vitum það að rekstur heilbrigðbýlisþjónustu er það er erfitt að manna og um leið þá urðu eldamenn horfðir til þess að hvernig mér geti nýtt sem mest samleiði þeim efnum og við viljum eins og við getum
- 0:28:28 eins og við getum leitað lausna með ríkisvaldrinu til að flýta þessu hér innan aðeins í sambandi við eins og kom fram og hérna hér áðan þá í þessum málum sem við höfum verið fjallað um er kynding fjarðarhallanna sem er mjög mikilvægt að við vegna fóru ágætlega yfir hér í samstarfi við fyrirtæki bæði tannarorku og eins fyrirtæki sem er horfðst til sko
- 0:28:56 fyrirtæki sem horfast til sólarorku einnig samspil þessara þátta til að einfalda kyndinguna við þurfum að ná þessum lausnum núna um leið og við einangrunum húsið og hérna sem varðandi að grefast á skref þá þurfum við líka á því að það sé kynnt og loftrast og við höfum horft til þess að ljúka því á þessu ári og það er bara mjög mikilvægt að gerist sem fyrst þó þetta er helja mikil framkvæmd þannig að við getum við getum komið henni til en þetta er svona liður í þvæ þvætti að
-
Bæjarstjórn, fundur 409 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 928“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 409 liður 3.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 929“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.