Bæjarráð, fundur 938
30. mars 2026, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 413 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 30. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kaupsamningur og afsal um Bakkabakka 15
Mál 2603148 Allur ferill málsins
Framlögð drög að kaupsamningi vegna sölu Bakkabakka 15 til Leigufélagsins Bríetar ehf. Bæjarstjóra falið að ljúka við endanlegan samning við Bríeti og undirritun hans í framhaldi af því.
-
2. Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Mál 2603168 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að gengið verði til samninga við Sparisjóð Austurlands um leigu á hluta af efri hæðinni að Egilsbraut 25, undir starfsemi Vinasels, skólaárið 2026-2027.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga um leigu á fyrirliggjandi forsendum.
-
3. Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ
Mál 2603053 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurnýjuðum samningi við Lyftingafélag Reyðarfjarðar um þjálfun í Janusarverkefninu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
4. Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA
Mál 2602032 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurnýjuðum samningi við Knattspyrnufélag Austfjarða um þjálfun í Janusarverkefninu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
5. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Fulltrúi Ofanflóðasjóðs og verkfræðistofunar Verkís mættu á fundinn og farið var yfir stöðu framkvæmda við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.
-
6. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir við Eskifjarðarhöfn, hafnaraðstöðu við Leirubakka. Ljóst er að umfangsmiklar dýpkunarframkvæmdir þurfa að fara fram við Leirubakka í vor og því þarf að ljúka öðrum undirbúningsframkvæmdum fyrir þann tíma. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga vegna þessa á þeim forsendum að framkvæmdum verði lokið fyrir 15. maí nk. Bæjarstjóra er falin frágangur samninga og unndirritun þeirra.
-
7. Stefna um opinbera þjónustu
Mál 2603248 Allur ferill málsins
Stefna um opinbera þjónustu lögð fram til kynningar.
-
8. Spurningakönnun til kjörina fulltrúa
Mál 2603244 Allur ferill málsins
Framlögð drög að spurningakönnun til kjörina fulltrúa. Könnunin verður send á alla kjörna fulltrúa í Fjarðabyggð á næstunni.
-
9. Frumvarp til laga um lax og silungsveiði, 530. mál
Mál 2603225 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga frá atvinnuvegaráðherra um lax- og silungsveiði.
-
10. Frumvarp til laga um lagareldi mál 529
Mál 2603243 Allur ferill málsins
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga frá atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Bæjarstjóra falið að vinna umsögn vegna málsins.
-
11. Til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)T
Mál 2603240 Allur ferill málsins
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun - vindorka og verndarflokkar. Bæjarstjóra falið að vinna umsögn vegna málsins.
-
12. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Mál 2601212 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð 996. fundar stjórnar Sambandsins frá 20. mars 2026.
-
13. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Mál 2602129 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 90. lögð fram til kynningar
-
14. Ársfundur Austurbrúar 2026
Mál 2603024 Allur ferill málsins
Fundargerðir frá aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og ársfundi Austurbrúar lagðar fram til kynningar.
-
15. Fjölskyldunefnd - 55
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 15.1 Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-20272603168
- 15.2 Skólavogin foreldrakönnun leik- og grunnskóla 2025-20262603201
- 15.3 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
- 15.4 Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ2603053
- 15.5 Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA2602032
- 15.6 Öldungaráð - 252603014F
- 15.7 Ungmennaráð - 232602022F
- 15.8 Ungmennaráð - 222602007F
- 15.9 Öldungaráð - 242602008F
-
16. Stjórn menningarstofu - 34
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 16.1 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
- 16.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
- 16.3 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
-
17. Ungmennaráð - 23
Fundargerð ungmennaráðs frá 10. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 17.1 Ungmennaráð - íþróttadagurinn 20262603085