Gjaldskrár 2026
Mál 2604046 Fyrst á dagskrá 13. apríl 2026, síðast 21. apríl 2026. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 21. apríl 2026, frá 0:20:04
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2026
Bæjarráð, fundur 940 liður 19
Lögð fram tillaga um breytingu á þjónustugjaldskrám fyrir árið 2026.
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur til að þjónustugjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði lækkaðar um 3% frá og með næstu mánaðarmótum, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu. Breytingum vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
Lesa alla bókunina (86 orð til viðbótar)
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í efnahagslífinu og hafa þannig áhrif á kostnaðarþróun í samfélaginu. Með því að lækka gjaldskrárnar vill Fjarðabyggð senda skýr skilaboð um að sveitarfélagið ætli að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa.
Bæjarráð telur að svigrúm sé til þessarar lækkunar á grundvelli bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar.
Jafnframt hvetur bæjarráð stjórnvöld til að grípa til sambærilegra aðgerða á sínum vettvangi með því að endurskoða gjaldskrár ríkisins og draga úr álögum þar sem svigrúm er til staðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 414 liður 1.19
Fundargerðin „Bæjarráð - 940“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 414. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:20:04 þessi fyrstæðisgjaldi verði háttað við lið eitt nítján þar vorum við að leggja til lækkun um þrjú prósent á gjaldskrám alhlutans í fjarðabyggð og þá er fullsamstæðan það innan bæjarráðs við lækkun þá gjaldskrár þjónustu sem snýða þjónustu við íbúa og fjölskyldur um þrjú persent og þetta er
- 0:20:32 um þrjú prósent og þetta erum við að gera í ljósi jákvæðrar afkomu alhlutans á síðustu tveimur ársetningum og einnig þeirra viðbótatekna sem við eigum eftir þá að taka inn í fjárhagsáætlun vegna loðnuveiða þar sem við vitum að við eigum þar tekjur inni þannig að það var sjálfsagt að stíga þetta skref og mikilvægt í rauninni fyrir sveitarfélagið hafandi bolmagn til þess að við séum að að senda skýr skilaboð um að
- 0:21:00 að senda skýr skilaboð um að við munum leggja okkar af mörkum til þess að draga úr verðbólguþrýsting