Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 42

20. október 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 917 liður 7

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. október tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 405 liður 5

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2026

    Mál 2509150 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir drög að fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs fyrir sitt leyti og vísar áfram til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.

  2. 2. Málefni fatlaðra

    Mál 2510074 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá ÖBÍ varðandi biðlista eftir NPA þjónustu. Sviðsstjóra falið að svara erindinu.

  3. 3. Styrkur til Krabbameinsfélags Austfjarða

    Mál 2510114 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað varðandi beiðni Krabbameinsfélags Austfjarða um styrk. Fjölskyldunefnd samþykkir styrkbeiðnina og felur sviðsstjóra að ganga frá samningi.

  4. 4. Lengri opnunartími sundlaugarinnar á Stöðvarfirði sumarið 2026

    Mál 2510132 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Sterks Stöðvarfjarðar um lengri opnunartími sundlaugarinnar á Stöðvarfirði sumarið 2026 eins og gert var árið 2025. Fjölskyldunefnd felur sviðsstjóra að ræða við íbúasamtök Fáskrúðsfjarðar um að viðhafa sama fyrirkomulag um opnun sundlauga og haft var í fyrra.

  5. 5. Gjaldskrá þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn 2026

    Mál 2509102 Allur ferill málsins

    Uppfærð gjaldskrá þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn lögð fyrir fjölskyldunefnd. Gjaldskrá tekur mið af barnalífeyri Tryggingastofnunar hverju sinni. Vísað til bæjarráðs.

  6. 6. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026

    Mál 2509098 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að breytingum á gjaldskrá stuðningsþjónustu. Fjölskyldunefnd samþykkir hækkun gjaldskrár stuðningsþjónustu um 3,9%. Vísað til bæjarráðs.

  7. 7. Öldungaráð - 19

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð Öldungaráðs lögð fram til kynningar.

    1. 7.1 Kynning á starfsemi og þjónustu fyrir öldungaráð2509188
    2. 7.2 Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð2303098
    3. 7.3 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
    4. 7.4 Reglur um stuðningsþjónustu 20252501083
    5. 7.5 Formannafundur LEB 20252509202