NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 25
29. janúar 2025, kl. 16:15 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 391 liður 6
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Mál 2002092 Allur ferill málsins
Kynning á stöðu hönnunar við ofanflóðavarnir í Grjótá. Áætlað er að hefðbundinn kynningarfundur fyrir íbúa fari fram í febrúar og jafnframt kynning fyrir bæjarstjórn.
-
2. Umsókn um breytingu á byggingarreit við Daltún 7
Mál 2411039 Allur ferill málsins
Umsókn um breytingu á byggingarreit við Daltún 7. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fá nánari útfærslur hjá umsækjanda og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
3. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði
Mál 2411098 Allur ferill málsins
Gunnar Jónsson bæjarritari sat þennan lið.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarfulltrúa að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar. Nefndin er samþykk tillögunni og felur skipulags- og byggingarfulltrúa nánari útfærslu og leggja fyrir nefndina að nýju á næsta fundi.
-
4. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Móbakki Neskaupstað. Kostnaðar mismunur við gerð vinnuvegar eða varanlegrar götu samkvæmt deiliskipulagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd er sammála tillögu sviðsstjóra og felur honum að vinna málið áfram.
-
5. Bólsvör 5
Mál 2501068 Allur ferill málsins
Erindi frá Sköpunarmiðstöðinni vegna lóðarinnar Bólsvarar 8. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fá nánari útfærslur og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. Byggingarleyfi Stekkjargrund 11 Viðbygging
Mál 2501106 Allur ferill málsins
Sótt um byggingarleyfi fyrir 10m2 viðbyggingu að Stekkjargrund 11, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir útgáfu byggingarleyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út bygginarheimild þegar öll göng liggja fyrir.
-
7. Umsókn um lóðir að Hjallaleiru 2 og 4
Mál 2412140 Allur ferill málsins
Mál tekið fyrir að nýju er varðar umsókn um Hjallaleiru 2 og 4 á Reyðarfirði. Nefndir felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afla frekari upplýsinga áður en málið verður tekið fyrir að nýju.
-
8. Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ 2025
Mál 2501145 Allur ferill málsins
Erindi frá NTÍ sem skylt er að vátryggja. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að vinna svar til NTÍ og senda fyrir 1.mars.