NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 24
8. janúar 2025, kl. 16:15 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 878 liður 7
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. janúar
Bæjarstjórn, fundur 390 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn um lóðið að Hjallaleiru 2 og 4
Mál 2412140 Allur ferill málsins
Sótt er um lóðir að Hjallaleiru 2 og 4, Reyðarfirði. Óskað er eftir því að þær verði sameinaðar nýtingarhlutfall lækkað. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda um nýtingarhlutfall.
-
2. Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað
Mál 2410211 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir Héraðsverks v.ofanflóðavarnir Neskaupstað. Grenndarkynningu lokið. Ein athugasemd barst. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir útgáfu stöðuleyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að svara athugasemd.
-
3. Byggingarleyfi Miðdalur 18-20
Mál 2412001 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Miðdalur 18-20. Grendarkynningu lokið engar athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum gögnum hefur verið skilað. Jafnframt er afgreiðslu grendarkynningar vísað til bæjarstjórnar.
-
4. Stækkun lóða við Hjallaleiru
Mál 2303218 Allur ferill málsins
Stækkun lóða við Hjallaleiru. Skipulags- og framkvæmdanefnd óskar eftir því að Geststaðir ehf skili inn hönnun og verkáætlun vegna framkvæmda á nú þegar úthlutuðum lóðum áður en tekið verði afstaða til stækkunar lóðarinnar. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
-
5. Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 3
Mál 2411122 Allur ferill málsins
Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 3. Umræða varðandi viðbót við grendarkynningu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að útvíkka grenndarkynningu og setja hana í almennt auglýsingarferli í fjórar vikur. Skipulags- og byggingarfulltrúa falin vinnsla málsins.
-
6. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2024
Mál 2404185 Allur ferill málsins
Fundargerð 182. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands.
Fundargerð HAUST lögð fram til kynningar
-
7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Valsmýri 6
Mál 2501027 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun lóðar að Valsmýri 6 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti stækkun lóðar og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
-
8. Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag
Mál 2402048 Allur ferill málsins
Elís Pétur Elísson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.
Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag. Ástand Strandgötu 6 í Neskaupstað er orðið mjög varhugavert m.t.t óveðra og fokhættu. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur verið í samskiptum við eigendur vegna þess en nefndin var áður búinn að samþykkja að leggja á dagsektir ef ekki yrði brugðist við fyrri samþykktum hennar. Nefndin telur nú að ástandið sé óviðunandi og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að setja sig í samband við eigendur hússins og tilkynna þeim að dagsektir verðir lagðar frá 22.janúar verði ekki þegar brugðist við.