Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 23

11. desember 2024, kl. 16:15 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 875 liður 15

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. desember.

  • Bæjarstjórn, fundur 389 liður 2

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefnd frá 11. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði

    Mál 2401199 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Breyting, tjaldsvæði Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Byggingarleyfi Mýrargata 10 breytingar á anddyri og salernisaðstöðu.

    Mál 2412007 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Mýrargata 10 breytingar á anddyri og salernisaðstöðu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Bakkar 2 vegna Sæbakka 28.

    Mál 2410129 Allur ferill málsins

    Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Bakkar 2 vegna stækkunar lóðar að Sæbakka 28. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Byggingarleyfi Miðdalur 18-20

    Mál 2412001 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhús að Miðdal 18-20, Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir Miðdal 15,17 og Árdal 18,16 og leggja fyrir fund að nýju.

  5. 5. Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 3

    Mál 2411122 Allur ferill málsins

    Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir Búðareyri 11, Búðargötu 1,2 og 5 og leggja fyrir nefndina að nýju.

  6. 6. Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun

    Mál 2410182 Allur ferill málsins

    Umsókn um breytta notkun og byggingarleyfi fyrir Búðareyri 25, Reyðarfirði. Minnisblað skipulagsfulltrúa lagt fyrir. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að útfæra tillögu að breytingu á aðalskipulagi og leggja fyrir nefndina til umræðu að nýju.

  7. 7. Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt í landi Randversstaða

    Mál 2412003 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt í landi Randversstaða. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  8. 8. Byggingarleyfi Hlíðargata 2 - bílskúr

    Mál 2411115 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr að Hlíðargötu 2, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Niðurstaða grendakynningar vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  9. 9. Ósk um stækkun lóðar

    Mál 2409124 Allur ferill málsins

    Kaldvík hefur óskað eftir að fá að stækka lóð sína við Strandgötu 18 á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkti stækkun lóðar Kaldvíkur fyrir sitt leyti fá 317.fundi sínum og vísaði til Skipulags- og framkvæmdanefndar. Frágangi lóðar skal hagað þannig að ekki sé aðgengi af lóð Kaldvíkur inn á hafnarsvæðið vegna hafnarverndar og afmörkun sé í samræmi við reglur hafnarverndar.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að hafa samband við umsækjendur og óska eftir gögnum vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi og leggja þau fyrir nefndina að nýju.

  10. 10. Umsókn um lóð Kirkjubólseyri 12

    Mál 2411133 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Kirkjubólseyri 12. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti lóðarúthlutunina og vísar henni til bæjarráð.

  11. 11. Endurgerð upptakastoðvirkja í Drangagili

    Mál 2310177 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd minnisblaði Verkís vegna endurgerðar upptakastoðvirkja í Drangagili. Bæjarráð samþykkti framlagðar tillögur að endurgerð upptakastoðvirkjanna fyrir sitt leyti og fól bæjarstjóra að vera í samskiptum við Ofanflóðasjóð vegna þeirra. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur undir samþykkt bæjarráðs.

  12. 12. Snjallvigtarlausnin Vitvog fyrir endurvinnslu og grenndarstöðvar og Botek

    Mál 2411161 Allur ferill málsins

    Kynning á snjallvigtarlausninni Vitvog fyrir endurvinnslu og grenndarstöðvar og Botek. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna og vísar henni til skoðunar í tengslum við vinnu í úrgangsmálum.

  13. 13. Fyrirspurn um opnunartíma á Móttökustöðva í Fjarðabyggðar

    Mál 2411206 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn um nýtingu móttökustöðva. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að svara viðkomandi.