NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 22
20. nóvember 2024, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 873 liður 19
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 20. nóvember.
Bæjarstjórn, fundur 388 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 20. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Byggingarleyfi Mýrargata 10 - breytingar inni
Mál 2411106 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Mýrargata 10 - breytingar inni. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
2. Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun
Mál 2410182 Allur ferill málsins
Sótt er um breytingu á notkun að Búðareyri 25, 1.hæð. Fyrir er leyfi á einni íbúð. Skipulags- og framkvæmdanefnd fór yfir málið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna frekar að málinu og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
3. Framkvæmdaleyfi til að leggja rafstreng auk ljósleiðara
Mál 2410186 Allur ferill málsins
Sjálfstætt framhald af núverandi verkefni RARIK, Mjóeyri-Eskifjöðrur. 650m lagnaleið, svo að verkið tekur stuttan tíma. Plægður er niður rafstrengur fyrir RARIK auk ljósleiðara. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð
Mál 2411016 Allur ferill málsins
Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við erindinu þar sem gámurinn stendur á lóðamörkum. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að fara yfir málið með umsækjanda.
-
5. Umsókn um lóð Naustavegur 10
Mál 2411029 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Naustaveg 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti umsókn lóðarinnar og vísar erindinu í bæjarráð.
-
6. Umsókn um lóð Árdalur 15 Eskifirði
Mál 2411056 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð að Árdal 15, Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti umsókn lóðarinnar og vísar erindinu í bæjarráð.
-
7. Umsókn um lóð Daltún 7
Mál 2411039 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Daltún 7. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt lóðarumsóknina og vísar henni í bæjarráð. Jafnframt samþykkir skipulags- og framkvæmdanefnda að úthlutun lóða í Daltúni sé gert að taka inn hitaveitu tengingu.
-
8. Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
Mál 2404177 Allur ferill málsins
Yfirferð og staða úrgangsmála í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra og bæjarstjóra að fara í viðræður við aðila sem koma að úrgangsmálum í Fjarðabyggð. Einnig að hefja undirbúning að gerð útboðsgagna vegna útboðs sem fram þarf að fara á árinu 2025.
-
9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 1
Mál 2411017 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir endurnýjun á lóðarleigusamningi og óverulega breytingu á deiliskipulagi samkvæmt uppdrætti, vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
10. Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk
Mál 2410168 Allur ferill málsins
Strandgata 58, Eskifirði er eignarlóð. Sótt er um leigulóð til vesturs fyrir sólpall. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti úthlutun á lóðinni og vísar málinu í bæjarráð.
-
11. Smávirkjun í uppsprettuá
Mál 2411097 Allur ferill málsins
Kynning vegna fyrirhugaðrar smávirkjunar í uppsprettuá. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags og byggingarfulltrúa að svara erindinu og vinna málið áfram.