Bæjarráð, fundur 873
25. nóvember 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varamaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 388 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 25. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 4
Mál 2411112 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2024.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. Ósk um aukafjárveitingu skólabókasafna
Mál 2411072 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs ósk um aukafjárveitingu til bókakaupa skólabókasafna.
Bæjarráð jók við fasta fjárheimildir til bókakaupa á árinu 2023 til að efla bókakost safnanna og samhæfa innkaupin. Bæjarráð getur því ekki orðið við beiðninni.
-
3. Endurgerð upptakastoðvirkja í Drangagili
Mál 2310177 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað Verkís vegna endurgerðar á upptakastoðvirkjum í Drangagili vegna beiðnar sveitarfélagsins um mat á ástandi varnarmannvirkjanna.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur að endurgerð upptakastoðvirkjanna í Drangagili fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að vera í samskiptum við Ofanflóðasjóð vegna þeirra.
Málinu vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd.
-
4. Gjaldskrá fasteignagjalda 2025
Mál 2409127 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til frekari umræðu milli umræðna um fjárhagsáætlun 2025 álagningarhlutföllum og fjárhæðum í fasteignagjöldum næsta árs.
Lögð fram tillaga að því að álagningarstuðull fasteignaskatts íbúðarhúsnæðis A lækki í 0,4% úr 0,424%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2025
Mál 2409155 Allur ferill málsins
Tekin umræða um gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs.
-
6. Íþrótta- og tómstundastyrkir 2025
Mál 2410178 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingum á reglum um úthlutun íþróttastyrkja.
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglunum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
7. Samskiptastefna FJB - Aton
Mál 2410169 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju verkefnatillaga ásamt minnisblaði upplýsingafulltrúa um ráðstöfun fjármagns og forgangsröðun.
Bæjarráð samþykkir tillögur og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerðar 2025.
-
8. Fyrirhugaðar breytingar í fræðslumálum
Mál 2411093 Allur ferill málsins
Lagður fram undirskriftarlisti þar sem gerð er krafa um upplýsingafund vegna fyrirhugaðra breytinga í fræðslumálum.
Bæjarráð vísar til bókunar frá bæjarráðsfundi nr. 871 sem segir að starf- og rýnihópar leik- og grunnskóla hafi samþykkt að fresta störfum hópanna þar til kjarasamningar við Kennarasamband Íslands hafa verið gerðir. Í ljósi þess að kjarasamningar hafa ekki enn náðst er óvissa um samningsbundna skilmála og umgjörð skólastarfsins. Stefnt er að því að taka upp þráðinn á nýju ári og vinna að niðurstöðum í hópunum í tíma fyrir skólaárið 2025-2026. Þó verður tekið mið af breytingum á gjaldskrá leikskóla, sem stefnt er að innleiða um komandi áramót, þar sem lögð er áhersla á að efla starfsumhverfi skólanna. Bæjarráð mun halda áfram að fylgjast með þróun mála og tryggja að starfshóparnir fái viðeigandi stuðning til að ná fram umbótum í samræmi við nýja kjarasamninga og markmið sveitarfélagsins um öflugt og faglegt skólastarf.
Þegar kjarasamningar liggja fyrir verður málið tekið fyrir og kynnt hlutaðeigandi aðilum.
-
9. Erindisbréf fjölmenningarráðs
Mál 2303056 Allur ferill málsins
Skipan fulltrúa Fjarðabyggðar í fjölmenningarráð.
Bæjarráð tilnefnir Joanna Katarzyna Mrowiec sem varamann í fjölmenningarráð til viðbótar við fyrri tilnefningu fjölskyldunefndar.
-
10. Opnunartími bæjarskrifstofu
Mál 2411125 Allur ferill málsins
Farið yfir þjónustu bæjarskrifstofu vegna nýrrar útfærslu kjarasamninga á vinnutíma.
Bæjarráð samþykkir útfærslu á opnunartíma bæjarskrifstofu en hann breytist þannig að skrifstofan lokar 12 á föstudögum. Bæjarstjóra falin útfærsla á fyrirkomulaginu.
-
11. Umsókn um lóð Naustavegur 10
Mál 2411029 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Naustaveg 10 á Norðfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
12. Umsókn um lóð Árdalur 15 Eskifirði
Mál 2411056 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Árdal 15 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
13. Umsókn um lóð Daltún 7
Mál 2411039 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Daltúni 7 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
14. Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk
Mál 2410168 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um leigulóð til vesturs fyrir sólpalla við Strandgötu 58, Eskifirði sem er eignarlóð.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
15. Ályktun frá Skólastjórafélagi Austurlands
Mál 2411128 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar áskorun Skólastjórafélags Austurlands til sveitarstjórna á Austurlandi um að beita sér fyrir lausn í kjaradeilu Kennarasambands Íslands.
Umboð til kjarasamningasgerðar f.h. Fjarðabyggðar liggur hjá samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Bæjarráð hvetur aðila til að ná samkomulagi í deilunni sem allra fyrst.
-
16. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Mál 2401142 Allur ferill málsins
Fundargerð 955. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
17. Tilkynning um löglega boðaða vinnustöðvun
Mál 2411141 Allur ferill málsins
Framlögð tilkynning frá Kennarasambandi íslands þar sem boðað er til vinnustöðvunar frá og með 10. desember nk. í Leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt starfsmönnum að fara yfir og kynna áhrif vinnustöðvunarinnar.
-
18. Fjölskyldunefnd - 18
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 18. nóvember.
- 18.2 Styrkbeiðni vegna Stígamóta fyrir árið 20252410214
- 18.3 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd2311096
- 18.4 Ósk um styrk-aukafjárveitingu skólabókasafna2411072
- 18.5 Erindisbréf fjölmenningarráðs2303056
- 18.6 Umgengnisreglur íþróttavalla og Fjarðabyggðarhallarinnar2411094
- 18.7 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa2004159
-
19. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 22
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 20. nóvember.
- 19.1 Byggingarleyfi Mýrargata 10 - breytingar inni2411106
- 19.2 Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun2410182
- 19.3 Framkvæmdaleyfi til að leggja rafstreng auk ljósleiðara2410186
- 19.4 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð2411016
- 19.5 Umsókn um lóð Naustavegur 102411029
- 19.6 Umsókn um lóð Árdalur 15 Eskifirði2411056
- 19.7 Umsókn um lóð Daltún 72411039
- 19.8 Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð2404177
- 19.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 12411017
- 19.10 Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk2410168
- 19.11 Smávirkjun í uppsprettuá2411097