Fjölskyldunefnd, fundur 18
18. nóvember 2024, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Magnús Árni Gunnarsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 873 liður 18
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 18. nóvember.
Bæjarstjórn, fundur 388 liður 4
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 18. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla
Mál 2003044 Allur ferill málsins
Stjórnandi kynnir sískráningu barnaverndar fyrir október 2024
-
2. Styrkbeiðni vegna Stígamóta fyrir árið 2025
Mál 2410214 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að styrkja Stígamót um 500.000 kr.
-
3. Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd
Mál 2311096 Allur ferill málsins
Stjórnandi félagsmála fer yfir það sem er efst á baugi i málaflokkinum
-
4. Ósk um styrk-aukafjárveitingu skólabókasafna
Mál 2411072 Allur ferill málsins
Bréf frá forstöðumönnum bókasafnanna kynnt. Beiðni um fjármuni til bókakaupa vísað til bæjarráðs
-
5. Erindisbréf fjölmenningarráðs
Mál 2303056 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd skipar eftirtalda fulltrúa í fjölmenningaráð.
Aðalmenn:
Barbarai Isabel Kupelas
Emilia Jadwiga Myszak
Varamenn
Anna Þórhildur Kristmundsdóttir
-
6. Umgengnisreglur íþróttavalla og Fjarðabyggðarhallarinnar
Mál 2411094 Allur ferill málsins
Stjórnandi íþrótta- og frístundamála kynnir drög að umgengnisreglum fyrir íþróttavelli og fjarðabyggðahöllina. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar.
-
7. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
Mál 2004159 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir endurskoðaðan samning þar sem hann byggir á traustum grunni núverandi samstarfs. Nýr samningur gerir verkefnið áhrifaríkara fyrir bæði sveitarfélagið og íbúa þess. Íþrótta- og tómstundafélögum er falið að taka við hlutverki þjálfunar, til að styðja betur við starf þeirra og auka virkni í íþrótta- og tómstundastarfi í Fjarðabyggð samhliða því að búa til þekkingu á svæðinu um fjölþætta heilsueflingu. Með þessu móti tryggjum við áframhaldandi framgang verkefnisins, stuðlum að samfélagslegri þátttöku og eflum stoðir íþróttahreyfingarinnar á svæðinu í samstarfi við Janus Heilsueflingu.