Bæjarstjórn, fundur 388
5. desember 2024, kl. 16:00 til 17:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Birgir Jónsson, aðalmaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025 - síðari umræða
Mál 2404213 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:15:52
Bæjarstjóri mælti fyrir tillögu að fjárhagsáætlun.
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025 til 2028 til síðari umræðu í bæjarstjórn ásamt breytingartillögum sem lagðar hafa verið til á milli umræðna.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson.
Bókun meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins vegna fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2025 til 2028
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn lýsa yfir mikilli ánægju með þau framfararskref sem tekin hafa verið að undanförnu og með samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir tímabilið 2025 til 2028. Áætlunin endurspeglar skýra stefnu um að styrkja innviði, bæta þjónustu og tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins.
Fjárfestingar og viðhald:
Áætlaðar fjárfestingar fyrir árið 2025 nema 955 milljónum króna, og heildarfjárfestingar næstu fjögurra ára eru áætlaðar tæplega 3,5 milljarðar króna. Þessu fylgir 22% aukning í fjárfestingum milli ára í A-hluta. Þau verkefni sem unnið er að nú eru ekki öll inn á fjárfestingaáætlun en munu koma þar inn á nýju ári þegar undirbúningi þeirra er lokið.
Stærstu verkefnin eru:
- Stækkun og breytingar á leikskólanum Dalborg (145 m.kr.).
- Byrjað verður á endurnýjun og einangrun á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar sem og lýsingu. Greiningar- og hönnunarvinna er hafin með það að leiðarljósi að hefja framkvæmdir á næsta ári.Endurnýjun lýsingar mun verða í upphafi nýs árs.
- Byrjað er á hönnun og kostnaðarmati vegna endurnýjunar á íþróttahúsi Eskifjarðar. Sú vinna verður kynnt íbúum áður en næstu skref verða ákveðin á nýju ári.
- Framkvæmdir við grunnskóla á Reyðarfirði og Eskifirði.
- Framkvæmdir munu hefjast í tengslum við framtíðaruppbyggingu Stríðsárasafnsins.
- Unnið verður áfram að endurbótum á Breiðabliki og tónskólahúsnæði á Norðfirði.
- Farið verður í endurbætur og viðhald á þaki grunnskólans á Breiðdal.
Heilbrigður rekstur:
Fjárhagsáætlunin staðfestir áherslur málefnasamningsins um hagræðingu í rekstri og forgangsröðun verkefna. Skuldahlutfall lækkar úr 103 % árið 2024 í 95% árið 2025 og í 82% árið 2028.
Áhersla hefur verið lögð á skipulagsbreytingar innan stjórnkerfisins til að auka skilvirkni og bæta verkaskiptingu. Með þessari stefnu er markvisst unnið að sjálfbærni í rekstri.
Stuðningur við fjölskyldur:
- Gjaldfrjálsar máltíðir í grunn- og leikskólum haldast óbreyttar.
- Frístundastyrkur barna hækkar úr 10.000 kr. í 18.000 kr., 80% aukning sem eflir aðgengi barna að íþrótta- og frístundastarfi.
- Lækkun fasteignaskatts fyrir íbúðarhúsnæði úr 0,424% í 0,4%.
- Gjaldskrárhækkanir haldast innan hóflegra marka, 2,5% fyrir barnafjölskyldur, samanborið við almenna hækkun 5,6%.
Fjölmenningarráð:
Fjölmenningarráð tekur til starfa árið 2025. Það er ætlað að efla lýðræði í Fjarðabyggð og verður ráðgefandi fyrir starfsemi sveitarfélagsins varðandi málefni og hagsmuni innflytjenda og fólks með erlendan bakgrunn.
Innleiðing nýrra lausna:
Mikil áhersla er lögð á nýsköpun og tækninýtingu til að bæta þjónustu og auka framlegð. Tilraunaverkefnið „Gott að eldast“ samþættir heimaþjónustu og heimahjúkrun og sýnir stefnu sveitarfélagsins í samþættingu þjónustu.
- Ný heimasíða verður opnuð árið 2025 með það markmið að bæta upplýsingaflæði og samskipti við íbúa.
- Opnun bókhalds: Fyrsta skrefið verður stigið í átt að opnu bókhaldi til að efla gagnsæi í rekstri sveitarfélagsins.
Framtíðarhorfur:
- Fjárhagsleg sjálfbærni með lækkandi skuldahlutfalli og ábyrgum fjárfestingum.
- Innviðauppbygging sem styður við bætta þjónustu og eflir samkeppnishæfni svæðisins.
- Aukin þjónustugæði með áherslu á nýja tækni og samþættingu þjónustu.
Meirihlutinn er stoltur af þeirri stefnumótun sem þessi fjárhagsáætlun endurspeglar. Hún tryggir áframhaldandi uppbyggingu og þjónustubætur, með skýrri framtíðarsýn um að efla samfélagið og tryggja jafnvægi milli sjálfbærni í rekstri og gæðaþjónustu fyrir alla íbúa.
Bókun Fjarðalistans vegna fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar.
Fjarðalistinn fagnar því að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025 til 2028 byggir á mörgum þeim áherslum sem fyrri meirihluti lagði grunn að. Mikill árangur hefur náðst í rekstri og uppbyggingu sveitarfélagsins eftir erfið ár, bæði í kjölfar COVID-19 faraldursins og í efnahagsumhverfi sem einkennst hefur af mikilli verðbólgu. Þrátt fyrir þessar áskoranir hefur sveitarfélagið tekist á við flókin verkefni og náð sýnilegum árangri, ekki síst vegna markvissrar forgangsröðunar og skýrrar stefnumótunar fyrri ára.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að ýmsar áskoranir eru enn til staðar, bæði vegna verðbólgu, vaxtastigs og óvissu í efnahagslífinu. Við teljum nauðsynlegt að sveitarfélagið sýni áframhaldandi aðhald í rekstri án þess að skerða mikilvæga þjónustu..
Fjarðalistinn er stolt af þeim árangri sem hefur náðst hingað til í rekstri sveitarfélagsins og mun áfram standa vörð um þau verkefni sem byggja undir sterkara samfélag. Við munum halda áfram að vinna að jöfnuði og samfélagslegri velferð fyrir alla íbúa Fjarðabyggðar.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum fjárhagsáætlun áranna 2025 til 2028.
-
2. Bæjarráð - 873
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:46:40
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 25. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 424111120:46:40
- 2.2 Ósk um aukafjárveitingu skólabókasafna24110720:47:36
- 2.3 Endurgerð upptakastoðvirkja í Drangagili23101770:48:32
- 2.4 Gjaldskrá fasteignagjalda 202524091270:49:00
- 2.5 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20252409155
- 2.6 Íþrótta- og tómstundastyrkir 20252410178
- 2.7 Samskiptastefna FJB - Aton2410169
- 2.8 Fyrirhugaðar breytingar í fræðslumálum24110930:49:28
- 2.9 Erindisbréf fjölmenningarráðs23030560:50:24
- 2.10 Opnunartími bæjarskrifstofu2411125
- 2.11 Umsókn um lóð Naustavegur 102411029
- 2.12 Umsókn um lóð Árdalur 15 Eskifirði2411056
- 2.13 Umsókn um lóð Daltún 72411039
- 2.14 Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk2410168
- 2.15 Ályktun frá Skólastjórafélagi Austurlands2411128
- 2.16 Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 20242401142
- 2.17 Tilkynning um löglega boðaða vinnustöðvun2411141
- 2.18 Fjölskyldunefnd - 182411016F
- 2.19 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 222411018F
-
3. Bæjarráð - 874
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:46:12
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 2. desember utan dagskrárliðar 3 staðfest með með 9 atkvæðum.
- 3.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 202524042130:52:16
- 3.2 Rekstur málaflokka 20242403158
- 3.3 Gjaldskrá leikskóla 202524091510:46:12
- 3.4 Samstarfssamningur um Breiðdalssetur - endurnýjun24111660:53:12
- 3.5 Boð á samráðsfund, eftirlit með hollustuháttum,mengunarvörnum og matvælum2411157
- 3.6 Boðun aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands 13.12. 2024 kl. 14002411183
- 3.7 Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 20242401142
- 3.8 Fjölskyldunefnd - 192411022F
- 3.9 Fjölskyldunefnd - 202411026F
-
4. Fjölskyldunefnd - 18
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:50:08
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 18. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.2 Styrkbeiðni vegna Stígamóta fyrir árið 20252410214
- 4.3 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd2311096
- 4.4 Ósk um styrk-aukafjárveitingu skólabókasafna2411072
- 4.5 Erindisbréf fjölmenningarráðs2303056
- 4.6 Umgengnisreglur íþróttavalla og Fjarðabyggðarhallarinnar2411094
- 4.7 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa2004159
-
5. Fjölskyldunefnd - 19
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 25. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Umgengnisreglur sundlauga Fjarðabyggðar2411092
- 5.2 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2024-20252410176
- 5.3 Gjaldskrá leikskóla 20252409151
-
6. Fjölskyldunefnd - 20
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:54:36
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 28. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Gjaldskrá leikskóla 202524091510:54:36
-
7. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 22
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 20. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 7.1 Byggingarleyfi Mýrargata 10 - breytingar inni2411106
- 7.2 Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun2410182
- 7.3 Framkvæmdaleyfi til að leggja rafstreng auk ljósleiðara2410186
- 7.4 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð2411016
- 7.5 Umsókn um lóð Naustavegur 102411029
- 7.6 Umsókn um lóð Árdalur 15 Eskifirði2411056
- 7.7 Umsókn um lóð Daltún 72411039
- 7.8 Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð2404177
- 7.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 12411017
- 7.10 Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk2410168
- 7.11 Smávirkjun í uppsprettuá2411097
-
8. Fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 4
Mál 2411112 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:50:36
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024.
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2024 er vegna áhrifa kjarasamninga og fjárfestingar í körfubíl slökkviliðs.
a) Úthlutun fjármagns vegna kjarasamninga til deilda í a- og b- hluta að fjárhæð 74,3 m.kr. af sameiginlegum kostnaði, fjárliður 21690.
b) Hækkun fjárveitinga til fjárfestinga tækjamiðstöðvar vegna endurnýjunar körfubíls slökkviliðs Fjarðabyggðar um 14. m.kr.
Breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2024 eru að rekstrarniðurstaða a- hluta batnar um 4,4 m.kr. en versnar um sömu fjárhæð í b- hluta og niðurstaða samstæðu verður óbreytt. Fjárfestingar a-hluta hækka um 14 m.kr. Sjóðsstaða Fjarðabyggðar í árslok verði um 238 m.kr.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2024.
-
9. Óveruleg breytingu á deiliskipulaginu Hafnarsvæði fiskihafnar austan Búðarár á Reyðarfirði
Mál 2411017 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:53:52
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu deiliskipulags.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Hafnarsvæði fiskihafnar austan Búðarár á Reyðarfirði vegna stækkunar lóðar að Óseyri 1, Reyðarfirði. Málsmeðferð er í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Hafnarsvæði fiskihafnar austan Búðarár á Reyðarfirði.
-
10. Gjaldskrá fasteignagjalda 2025
Mál 2409127 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:54:20
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á álagningarhlutföllum fasteignaskatts milli umræðna.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um breytingu á álagningarhlutfalli fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði þannig að fasteignaskattur á A húsnæði lækki í 0,4% úr 0,424% á árinu 2025.
Gjaldskráin og reglurnar með breytingum sem taka gildi þann 1. janúar 2025 eru eftirfarandi.
Fasteignaskattur A verði 0,400 % af húsmati og lóðarhlutamati
Fasteignaskattur B verði 1,320 % af húsmati og lóðarhlutamati
Fasteignaskattur C verði 1,650 % af húsmati og lóðarhlutamati
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00 % af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald skv. gjaldskrá 4.985 kr. á veitu og 408 kr. pr. fermetra húsnæðis.
Fráveitugjald skv. gjaldskrá 0,3232 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald skv. gjaldskrá 53.279 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald skv. gjaldskrá 36.639 kr. á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði tíu, mánaðarlega frá 1. febrúar. Eindagi fasteignagjalda er
síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Afsláttur til eldri borgara og örorkulífeyrisþega er framreiknaður frá fyrra ári m.v. breytingar á launavísitölu og meðalbreytingu fasteignamats íbúðarhúsnæðis.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytta gjaldskrá fasteignagjalda árið 2025 ásamt reglum um afslætti.
-
11. Reglur um íþrótta- og tómstundastyrki
Mál 2410178 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:57:08
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á reglum fyrir íþrótta- og tómstundastyrk.
Til máls tók Birgir Jónsson.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á reglum fyrir íþrótta- og tómstundastyrk.
-
12. Tillaga um slit byggðasamlags um Skólaskrifstofu Austurlands.
Mál 2411183 Allur ferill málsins Upptaka frá 2:00:24
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að slíta Skólaskrifstofu Austurlands og byggðasamlagi um málefni fatlaðs fólks á Austurlandi á grundvelli tillögu stjórnar Skólaskrifstofu Austurlandi í fundargerð stjórnar frá 27. nóvember 2024. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að yfirtaka eignir og skuldir í samræmi við tillögu stjórnar um skiptingu þeirra milli sveitarfélaganna. Einnig samþykkir bæjarstjórn að yfirtaka skuldbindingu Skólaskrifstofu Austurlands við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins í samræmi við hlutfallslega skiptinu eftir íbúafjölda milli sveitarfélaganna á Austurlands í janúar 2024. Hlutur Fjarðabyggðar verður hlutfall af heildarskuldbindingu skólaskrifstofunnar við lífeyrissjóðinn.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að slitum á Skólaskrifstofu Austurlands og byggðasamlagi um málefni fatlaðs fólks.