Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 20

28. nóvember 2024, kl. 16:00 til 17:49, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 874 liður 9

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 28. nóvember.

  • Bæjarstjórn, fundur 388 liður 6

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 28. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá leikskóla 2025

    Mál 2409151 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd leggur til breytingar á leikskólagöldum Fjarðabyggðar. Breytingar eru gerðar til að mæta vaxandi álagi innan leikskólanna. Með breytingunum fela m.a. í sér að lækka vistunargjald fyrir 6 tíma umtalsvert en hækka vistun fyrir 8 tíma.

    Jafnframt verður tekið gjald fyrir vistun á skráningardögum. Lagt er til að gjaldskrá í leikskólunum taki gildi 1. mars næstkomandi en fram að því verði farið í kynningarferli á meðal foreldra og starfsmanna leikskóla. Tillagan var samþykkt með 4 atkvæðum sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gegn einu atkvæði Fjarðalistans.

    Tillaga Fjarðalistans

    Fjarðalistinn telur afar óhentugt að hækka gjöld á barnafjölskyldur umfram 2,5% í núverandi efnahagsástandi sem einkennist af hárri verðbólgu, miklum vaxtakostnaði og óöryggi í fjármálum heimila og að sama skapi er mikilvægt að taka tillit til samkomulags sveitarfélaga um að leggja sitt af mörkum til ábyrgs efnahagsstjórnunar.

    Fjarðalistinn leggur áherslu á að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki til að styðja við barnafjölskyldur í Fjarðabyggð. Mikilvægt er að sveitarfélagið sýni ábyrgð og forðist að auka álag á heimili sem þegar glíma við aukinn kostnað.

    Fjarðalistinn leggur því til eftirfarandi:

    1.Gjaldskrá leikskóla fyrir árið 2025 hækki um 2,5%, í samræmi við ákvörðun sem tekin var á 14. fundi Fjölskyldunefndar, 869. fundi bæjarráðs og staðfest á 386. fundi bæjarstjórnar

    2. Áfram verði unnið að því að bæta starfsumhverfi leikskólanna í samráði við starfsfólk og foreldra.

    Tllaga Fjarðalistanns var felld með 4 atkvæðum sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gegn einu atkvæði Fjarðalistans.

    Bókun Fjarðalistans:

    Fjarðalistinn áréttar mikilvægi þess að allar veigamiklar breytingar á leikskólaþjónustu séu framkvæmdar í nánu samráði við foreldra og aðra hagsmunaaðila áður en þær eru samþykktar. Slíkt samráð tryggir að rödd foreldra heyrist í ákvörðunum sem snerta velferð og menntun barna þeirra. Einnig er mikilvægt að kynna breytingarnar með góðum fyrirvara til að skapa gagnsæi og trúverðugleika í samskiptum við samfélagið. Gjaldskrárbreytingarnar sem eru boðaðar eru að sama skapi gríðarlega miklar og munu þýða töluverðar auknar álögur á margar barnafjölskyldur í Fjarðabyggð. Leikskólamál eru þar að auki jafnréttismál, þar sem leikskólaþjónusta er forsenda þess að foreldrar eigi möguleika á að taka virkan þátt í atvinnulífi og samfélagi á jafnræðisgrundvelli. Fjarðalistinn greiðir því atkvæði á móti breytingum á gjaldskrá leikskóla Fjarðabyggðar