Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 21

2. desember 2024, kl. 16:15 til 18:49, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 875 liður 11

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. desember.

  • Bæjarstjórn, fundur 389 liður 3

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2024-2025

    Mál 2410176 Allur ferill málsins

    Skólastjórar í grunnskólum Fjarðabyggðar (Nesskóli, Eskifjarðarskóli, Grunnskóli Reyðarfjarðar og Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar) mættu og kynntu starfsáætlanir skólanna fyrir skólaárið 2024-2025.

  2. 2. Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2411209 Allur ferill málsins

    Fyrirkomulag og reglur á vali íþróttamanneskju Fjarðabyggðar var kynnt fyrir fjölskyldunefnd. Einnig voru tilnefningar á íþróttamanneskju Fjarðabyggðar 2024 kynntar fyrir nefndinni. Ákveðið var að veita frest fram að 6. desember til að taka á móti fleiri tilnefningum.

  3. 3. Firmakeppni í hraðskák 2024

    Mál 2410213 Allur ferill málsins

    Beiðni frá Skáksambandi Austurlands var kynnt. Því miður getur Fjarðabyggð ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.

  4. 4. Vitundarvakningar Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi

    Mál 2411158 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd tilnefndi Tinnu Hrönn Smáradóttur og Magnús Árna Gunnarsson sem fulltrúa sveitarfélagsins á viðburðinum.

  5. 5. Gjaldskrá skíðasvæðis 2025

    Mál 2409156 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að samræma gjaldskrár fyrir skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal fyrir veturinn 2025 og láta skíðakortin gilda á báðum stöðum.

  6. 6. UÍA beiðni um styrk á árinu 2024

    Mál 2411009 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að veita ÚÍA árlegan styrk til fjölbreyttrar íþróttastarfsemi.

  7. 7. Öldungaráð - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð Öldungaráðs lögð fyrir fjölskyldunefnd.

    1. 7.1 Bæklingur um málefni eldra fólks2405168
    2. 7.2 Töluleg gögn stuðningþjónustu2409186
    3. 7.3 Verklag og starfsreglur öldungaráðs2409187
    4. 7.4 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071