Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 875

12. desember 2024, kl. 08:15 til 10:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 389 liður 1

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 12. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2024

    Mál 2403158 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - október og skatttekjur og launakostnaður janúar - nóvember.

  2. 2. Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður

    Mál 2211108 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður með verkefnastjóra. Umræða um framlengingu verkefnisins út frá stöðu verkefna sem unnið hefur verið að.

    Bæjarráð tekur málið fyrir á næsta fundi sínum.

  3. 3. Uppfærsla sveitarfélagalausna Wise og Microsoft Dynamics 365 Business Central SaaS

    Mál 2411119 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar samkomulag um uppfærslu á fjárhagsupplýsingakerfi Fjarðabyggðar.

  4. 4. Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029

    Mál 2412033 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að sóknaráætlun Austurlands en hún er til kynningar og umsagnar í samráðsgátt og verður til 12. desember nk.

    Bæjarráð samþykkir að veitt sé umsögn um sóknaráætlunina.

  5. 5. Endurnýjun trygginga hjá TM

    Mál 2412056 Allur ferill málsins

    Þriggja ára tryggingartímabili samnings Fjarðabyggðar og Tryggingarmiðstöðvarinnar er lokið en þá gefst aðilum kost á að framlengja samning sinn til tveggja ára.

    Bæjarráð samþykkir að tryggingasamningur við Tryggingamiðstöðina verði framlengdur sbr. ákvæði hans og felur bæjarstjóra að staðfesta framlengingu.

  6. 6. Sigurgeir Svanbergsson - Heimildarmynd

    Mál 2411197 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um styrkveitingu til gerðar heimildarmyndar um sundafrek Sigurgeirs Svanbergssonar en hann áformar sund yfir Ermasund 18-23. júlí 2025.

    Vísað til stjórnar menningarstofu.

  7. 7. Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis

    Mál 2412098 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að lýsa yfir vilja til samstarfs um byggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð í samstarfi við Leigufélagið Bríet. Bæjarstjóra er falið að ganga frá og undirrita samstarfsyfirlýsingu þess efnis.

  8. 8. Samstarfsamningur Fjarðabyggðar og björgunarsveita í Fjarðabyggð 2024

    Mál 2411062 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samstarfsamningi Fjarðabyggðar og björgunarsveitanna í Fjarðabyggð til næstu fjögurra ára.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi og undirrita.

  9. 9. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð nr. 959 stjórnar Sambandsins

  10. 10. Umsókn um lóð Kirkjubólseyri 12

    Mál 2411133 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar umsókn um lóðina Kirkjubólseyri 12.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  11. 11. Fjölskyldunefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. desember.

    1. 11.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2024-20252410176
    2. 11.2 Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 20242411209
    3. 11.3 Firmakeppni í hraðskák 20242410213
    4. 11.4 Vitundarvakningar Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi2411158
    5. 11.5 Gjaldskrá skíðasvæðis 20252409156
    6. 11.6 UÍA beiðni um styrk á árinu 20242411009
    7. 11.7 Öldungaráð - 132409017F
  12. 12. Fjölskyldunefnd - 22

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. desember.

    1. 12.1 Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 20242411209
    2. 12.2 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2024-20252410176
    3. 12.3 Niðurstöður Skólapúlsins_haust 2024_6.-10.b2411113
    4. 12.4 Öldungaráð - 142411027F
  13. 13. Stjórn menningarstofu - 12

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. desember.

    1. 13.1 Verkefni menningarstofu 20242401039
    2. 13.2 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
    3. 13.3 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20242402237
    4. 13.4 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
    5. 13.5 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20252404223
    6. 13.6 Sóknaráætlun Austurlands 2025-20292412033
  14. 14. Hafnarstjórn - 320

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 9. desember.

    1. 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    2. 14.2 Ósk um aðgang að eftirlitskerfum við Fjarðabyggðarhafnir2411126
    3. 14.3 Verkleg mengunarvarnaæfing2407059
    4. 14.4 Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa2409069
    5. 14.5 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20242410218
    6. 14.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027
  15. 15. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. desember.

    1. 15.1 Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði2401199
    2. 15.2 Byggingarleyfi Mýrargata 10 breytingar á anddyri og salernisaðstöðu.2412007
    3. 15.3 Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Bakkar 2 vegna Sæbakka 28.2410129
    4. 15.4 Byggingarleyfi Miðdalur 18-202412001
    5. 15.5 Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 32411122
    6. 15.6 Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun2410182
    7. 15.7 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt í landi Randversstaða2412003
    8. 15.8 Byggingarleyfi Hlíðargata 2 - bílskúr2411115
    9. 15.9 Ósk um stækkun lóðar2409124
    10. 15.10 Umsókn um lóð Kirkjubólseyri 122411133
    11. 15.11 Endurgerð upptakastoðvirkja í Drangagili2310177
    12. 15.12 Snjallvigtarlausnin Vitvog fyrir endurvinnslu og grenndarstöðvar og Botek2411161
    13. 15.13 Fyrirspurn um opnunartíma á Móttökustöðva í Fjarðabyggðar2411206