Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirÖldungaráð

Öldungaráð, fundur 14

2. desember 2024, kl. 14:00 til 16:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Helga Sól Birgisdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ólafur Helgi Gunnarsson, formaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
  • Árni Þórhallur Helgason, aðalmaður
  • Jórunn Bjarnadóttir, aðalmaður
  • Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Borgþór Guðjónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Helga Sól Birgisdóttir, ritari

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Fjölskyldunefnd, fundur 22 liður 4

    Fundargerð öldungaráðs lögð fyrir fjölskyldunefd.

  • Bæjarstjórn, fundur 389 liður 9

    Fundargerðir öldungaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð öldungaráðs frá 2. desember staðfest með 9 atkvæðum.

  • Fjölskyldunefnd, fundur 24 liður 3

    Fundagerð öldungaráðs tekin fyrir til kynningar

  • Bæjarráð, fundur 881 liður 14

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð öldungaráðs frá 2. desember.

  • Bæjarstjórn, fundur 391 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð öldungaráðs frá 2. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsreglur öldungaráðs

    Mál 2409187 Allur ferill málsins

    Kynnt fyrir öldungaráði tillaga að starfsreglum öldungaráðs sem felur í sér skýrara verklag ráðsins og hlutverk aðalmanna og starfsmanns. Starfsmaður vinnur áfram að starfsáætlun útfrá umræðum á fundinum.

  2. 2. Starfsáætlun öldungaráðs

    Mál 2411169 Allur ferill málsins

    Starfsáætlun öldungaráðs kynnt. Formaður og starfsmaður vinna í starfsáætlun og kynna fyrir næsta fund.

  3. 3. Gagnlegar heimasíður - eldra fólk

    Mál 2411191 Allur ferill málsins

    Gagnlegar heimasíður fyrir eldra fólk kynntar fyrir öldungaráði.