Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 881

3. febrúar 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 391 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 3. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA

    Mál 2306119 Allur ferill málsins

    Framlögð að nýju til samþykktar drög að samningi Fjarðabyggðar og HSA um samþættingu stuðningsþjónustu í verkefninu Gott að eldast. Breytingar hafa verið kynntar meðal starfsmanna.

    Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. 2. Umsókn um styrk til hátíðarinnar BigJump

    Mál 2501216 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn frá Wojciech Zdzislaw Grzelak um styrk vegna BigJump hátíðarinnar.

    Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar stjórnar menningarstofu.

  3. 3. Kauptilboð í Sólbakka 7, Breiðdalsvík

    Mál 2501215 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð í fasteignina Sóbakki 7 á Breiðdalsvík.

    Bæjarráð hafnar tilboði og felur fjármálastjóra að gera gagntilboð.

  4. 4. Stefnumörkun Lögreglustjórans á Austurlandi

    Mál 2402151 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á stjórnvöld að efla löggæslu á Austurlandi, þar sem núverandi mönnun telst ófullnægjandi og álag á lögreglumenn mikið á jafn landfræðilega stóru svæði og Austurland er.

    Svæðið er mikilvægur hlekkur í almannavarnakerfi landsins, auk þess sem landamæraeftirlit fer fram á flugvellinum á Egilsstöðum og á landamærahöfnum umdæmisins. Skortur á lögreglumönnum hefur áhrif á getu löggæslu til að sinna lögbundnum verkefnum.

    Bæjarráð leggur einnig áherslu á að efla tækjakost lögreglunnar, sérstaklega með tilliti til landamæraeftirlits, til að tryggja öfluga og skilvirka löggæslu á svæðinu.

  5. 5. Fræðslu fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna

    Mál 2501193 Allur ferill málsins

    Framlögð ósk Miðstöðvar slysavarna barna um styrk v/ fræðslu fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna á heimilum og öryggi þeirra í bílum.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja fræðsluna um umbeðna fjárhæð.

  6. 6. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins

    Tilnefning fulltrúa í hafnarstjórn í stað Birgis Jónssonar vegna tímabundis leyfis hans frá störfum sem fulltrúi í hafnarstjórn til 1 júní nk. Jón Björn Hákonarson tekur sæti Birgis meðan á leyfi hans stendur.

  7. 7. Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði

    Mál 2501185 Allur ferill málsins

    Farið yfir hugmyndir R101 ehf. um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og skipulagsmál svæðisins.

  8. 8. Endurhönnun leiðakerfis landsbyggðarstrætó

    Mál 2501210 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð og kynningarefni frá Vegagerðinni vegna endurhönnunar almenningssamgangna á landsbyggðinni.

  9. 9. Ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla

    Mál 2501190 Allur ferill málsins

    Framlögð ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla sem lýsir yfir áhyggjum sínum af aðstöðuleysi eskfirskar barna til hreyfingar.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar fyrir erindið. Það er fullur skilningur á þeim áhyggjum sem fram koma í bréfinu og þeirri mikilvægu áherslu sem þar er lögð á lýðheilsu, hreyfingu og aðgang barna og samfélagsins alls að viðunandi íþróttaaðstöðu. Eins og fram kemur í meirihlutasamningi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er ríkur vilji til að tryggja uppbyggingu íþróttaaðstöðu á Eskifirði. Í því ljósi er unnið hörðum höndum að því að tryggja úrbætur sem allra fyrst. Bæjarráð tekur undir með bréfriturum að nauðsynlegt sé að bregðast við þeirri stöðu sem nú er uppi og leggja áherslu á lausnir sem bæta hreyfingaraðstöðu og stuðla að bættri lýðheilsu og velferð barna og íbúa Eskifjarðar. Bæjarráð mun fylgja eftir þessari brýnu umræðu og tryggja að íþróttaaðstaða á Eskifirði verði sett í forgang.

  10. 10. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025

    Mál 2501180 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 78. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.

  11. 11. Fundargerðir stjórnar Orkusveitarfélaga 2025

    Mál 2501007 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 79.fundargerð fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

  12. 12. Fjölskyldunefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. janúar.

    1. 12.1 Íslenska æskulýðsrannsóknin_20242411109
    2. 12.2 Rannsókn á áhættuþáttum sjálfsvíga2412090
    3. 12.3 Öldungaráð - 142411027F
    4. 12.4 Samstarfssamningur milli Fjarðabyggðar og Múlaþings við aflið2209130
    5. 12.5 Samningur við Píeta samtökin2501156
  13. 13. Hafnarstjórn - 321

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 27. janúar.

    1. 13.1 Öryggismál hafna2206100
    2. 13.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    3. 13.3 Viðgerð stálþils Bræðslubryggju Eskifirði (norðurkantur)2501026
    4. 13.4 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn2501155
    5. 13.5 Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum2501146
    6. 13.6 Ósk um aðgang að eftirlitskerfum við Fjarðabyggðarhafnir2411126
    7. 13.7 Sjávarútvegssýningin 20252501140
    8. 13.8 Brotinn bryggjustaur2501139
    9. 13.9 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20242412105
    10. 13.10 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju2501133
  14. 14. Öldungaráð - 14

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð öldungaráðs frá 2. desember.

    1. 14.1 Starfsreglur öldungaráðs2409187
    2. 14.2 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
    3. 14.3 Gagnlegar heimasíður - eldra fólk2411191