Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2025

Ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla

Mál 2501190 Fyrst á dagskrá 3. febrúar 2025, síðast 6. febrúar 2025. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2025

    Bæjarráð, fundur 881 liður 9

    Framlögð ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla sem lýsir yfir áhyggjum sínum af aðstöðuleysi eskfirskar barna til hreyfingar.

    Lesa alla bókunina (124 orð til viðbótar)

    Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar fyrir erindið. Það er fullur skilningur á þeim áhyggjum sem fram koma í bréfinu og þeirri mikilvægu áherslu sem þar er lögð á lýðheilsu, hreyfingu og aðgang barna og samfélagsins alls að viðunandi íþróttaaðstöðu. Eins og fram kemur í meirihlutasamningi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er ríkur vilji til að tryggja uppbyggingu íþróttaaðstöðu á Eskifirði. Í því ljósi er unnið hörðum höndum að því að tryggja úrbætur sem allra fyrst. Bæjarráð tekur undir með bréfriturum að nauðsynlegt sé að bregðast við þeirri stöðu sem nú er uppi og leggja áherslu á lausnir sem bæta hreyfingaraðstöðu og stuðla að bættri lýðheilsu og velferð barna og íbúa Eskifjarðar. Bæjarráð mun fylgja eftir þessari brýnu umræðu og tryggja að íþróttaaðstaða á Eskifirði verði sett í forgang.

  2. Bæjarstjórn, fundur 391 liður 3.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 881“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is