Bæjarráð, fundur 880
27. janúar 2025, kl. 08:15 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 391 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 27. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Mál 2306119 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi Fjarðabyggðar og HSA um samþættingu stuðningsþjónustu í verkefninu Gott að eldast lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð yfirfór samninginn og vísar honum til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til kynningar meðal starfsmanna. Samningur tekinn fyrir að nýju í bæjarráði af aflokinni kynningu meðal starfsmanna.
-
2. Reglur um stuðningsþjónustu 2025
Mál 2501083 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs breyttum reglum um stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar samhliða samningi við Heilbrigðisstofnun Austurlands um verkefnið gott að eldast.
-
3. Reglur um frístundastyrk Fjarðabyggðar 2025
Mál 2411050 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs uppfærðum reglum um frístundastyrk Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Stöðumat vegna rýminga og ofanflóðahættu
Mál 2501110 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir rýni almannavarna á rýmingu húsnæðis vegna ofanflóðahættu 19. og 20 janúar sl.
-
5. Rýming hesthúsa á snjóflóðahættusvæði
Mál 2501138 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Dýraverndunarsambandi Íslands vegna rýmingar hesthúsa á snjóflóðahættusvæði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera í sambandi við lögreglustjóra vegna erindis en um er að ræða aðgerð á vegum embættisins vegna almannavarnarástands.
-
6. Verkfallsboðun LSS og ályktun félagsfundar
Mál 2501115 Allur ferill málsins
Framlögð verkfallsboðun Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna en boðað er til verkafalla sem hefjast 10. febrúar og tekur til mismunandi tímabila og starfsemi en alsherjarverkfall hefst 10. mars nk.
Vísað til slökkviliðsstjóra og sviðsstjóra mannauðs- og úrbótasviðs til skoðunar.
-
7. Umsókn um afnot íþróttahús Norðfjarðar vegna þorrablóts
Mál 2501143 Allur ferill málsins
Framlögð ósk Kommablótsins um styrk gegn afnotum af íþróttahúsinu í Neskaupstað fyrir þorrablót 30. janúar til 2. febrúar 2025.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Kommablótið sem nemur leigu hússins, tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
8. Yfirlýsing frá Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi
Mál 2501123 Allur ferill málsins
Framlögð yfirlýsing Miðstöðvar sjúkraflugs á Íslandi vegna lokunar flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli en 10. janúar sl. var tilkynnt um verulegar takmarkanir á flugumferð um Reykjavíkurflugvöll. Sú takmörkun er fólgin í lokun tveggja flugbrauta í myrkri vegna áhrifa trjágróðurs á aðflugs- og brottflugsfleti umræddra flugbrauta.
Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á Reykjavíkurborg, stjórnvöld og Isavia að tryggja flugrekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar án tafar. Brýnir hagsmunir eru í húfi, þar sem óheft aðgengi að flugvellinum er lífsnauðsynlegt fyrir sjúkraflug, sem veitir veikum og slösuðum aðgang að bráðri heilbrigðisþjónustu á Landspítalanum.
Á hverju ári eru fluttir um 950 til 1000 sjúklingar með sjúkraflugi, þar af um 630 til 650 til Reykjavíkur, og er óásættanlegt að lokun flugbrauta í myrkri takmarki þessa þjónustu. Ljóst er að slíkar takmarkanir gætu dregið úr lífslíkum eða batahorfum fjölda sjúklinga.
Bæjarráð hvetur aðila málsins til að leita allra leiða til úrbóta, í þágu jafns aðgangs allra landsmanna að heilbrigðisþjónustu, eins og kveðið er á um í lögum og hefjast handa við það nú þegar.
-
9. Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar
Mál 1805262 Allur ferill málsins
Framlögð sem trúnaðarmál fundargerð upplýsingaöryggisnefndar frá 22. janúar 2024.
Bæjarráð samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti.
-
10. Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum
Mál 2501124 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar umsögn orkusveitarfélaga um frumvarp lögð fram til kynningar.
-
11. Ársfundur Brákar 2025
Mál 2412148 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags.
-
12. Skammtímafjármögnun 2025
Mál 2501152 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um framlengingu skammtímafjármögnunar Fjarðabyggðar 2025. Núverandi samningur við Íslandsbanka rennur úr 1.2.2025.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að endurnýja samning um yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka að fjárhæð 200 m.kr. Staðfestingu yfirdráttarheimildar vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
-
13. Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis
Mál 2412098 Allur ferill málsins
Framlögð drög yfirlýsingar vegna uppbyggingar á leiguhúsnæðis á vegum Bríetar leigufélags í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir efni yfirlýsingarinnar og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
-
14. Beiðni um endurgjaldslaus afnot
Mál 2501158 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af Egilsbúð vegna árshátíðar nemenda skólans.
Bæjarráð samþykkir að styrkja nemendafélag skólans sem nemur afnotum þess af Egilsbúð samanber beiðni þar af lútandi. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
-
15. Opið bréf vegna íþróttamála á Eskifirði
Mál 2501162 Allur ferill málsins
Framlagt opið bréf vegna íþróttamála á Eskifirði.
Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar fyrir erindið. Það er fullur skilningur á þeim áhyggjum sem fram koma í bréfinu og þeirri mikilvægu áherslu sem þar er lögð á lýðheilsu, hreyfingu og aðgang barna og samfélagsins alls að viðunandi íþróttaaðstöðu.
Eins og fram kemur í meirihlutasamningi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er ríkur vilji til að tryggja uppbyggingu íþróttaaðstöðu á Eskifirði. Í því ljósi er unnið hörðum höndum að því að tryggja úrbætur sem allra fyrst.
Bæjarráð tekur undir með bréfriturum að nauðsynlegt sé að bregðast við þeirri stöðu sem nú er uppi og leggja áherslu á lausnir sem bæta hreyfingaraðstöðu og stuðla að bættri lýðheilsu og velferð barna og íbúa Eskifjarðar. Bæjarráð mun fylgja eftir þessari brýnu umræðu og tryggja að íþróttaaðstaða á Eskifirði verði sett í forgang.
-
16. Íþróttahús á Eskifirði
Mál 2501087 Allur ferill málsins
Fjallað um íþróttahús á Eskifirði.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur fundað með fulltrúa R101 ehf. um byggingu íþróttahúss á Eskifirði og lýsir yfir ánægju með áhuga fyrirtækisins á verkefninu.
Bæjarráð er sammála um að halda áfram að útfæra verkefnið og er bæjarstjóra falið að vinna drög að greiningu fyrir forsendur þess með tilliti til kostnaðar og hugsanlegs leigusamnings.
Bæjarráð leggur áherslu á að útfærslur verði í samræmi við þarfir og stuðli að bættri íþróttaaðstöðu á Eskifirði.
-
17. Stefnumörkun lögreglunnar Austurlandi
Mál 2402151 Allur ferill málsins
Lögreglustjóri og yfirlögregluþjónn fóru yfir stefnumörkun Lögreglustjórans á Austurlandi, stöðu embættisins og verkefni þess.
-
18. Fjölskyldunefnd - 23
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. janúar.
- 18.2 Sumarlokun leikskóla 2025 og 20262501097
- 18.3 Ársuppgjör fjölskyldusviðs fyrir 20242501098
- 18.4 Fundaáætlun fjölskyldunefnda vor 2025r2404099
- 18.5 Frístundastyrkur Fjarðabyggðar 20252411050
- 18.6 Reglur um stuðningsþjónustu 20252501083
- 18.7 Árangursskýrsla UNICEF á Íslandi - Árangur innanlands í 20 ár2412143
- 18.8 Fjölmenningaráð2411165
- 18.9 Jólasjóður 2024 - samantekt2412137