Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 23

20. janúar 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 880 liður 18

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. janúar.

  • Bæjarstjórn, fundur 391 liður 4

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jóhanna Sigfúsdóttir.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Sískráning barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Hafnar í Hornafirði kynnt.

  2. 2. Sumarlokun leikskóla 2025 og 2026

    Mál 2501097 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar tillögur um sumarlokanir leikskóla 2024 og 2025.

  3. 3. Ársuppgjör fjölskyldusviðs fyrir 2024

    Mál 2501098 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd fór yfir ársuppgjör fjölskyldusviðs fyrir árið 2024 ásamt skýringum. Ljóst er að rekstrarniðurstaða sviðsins er neikvæð um 155.746.528 kr., miðað við útgönguspá. Helstu frávik má rekja til aukins veikinda- og yfirvinnukostnaðar vegna manneklu í leik- og grunnskólum, auk veikinda í íþróttamiðstöðvum. Þá hefur orkukostnaður og ýmis rekstrarútgjöld hækkað umfram áætlanir.

    Nefndin tekur undir að mikilvægt er að grípa til aðgerða til að bregðast við þessari stöðu. Nefndin leggur áherslu á eftirfarandi aðgerðir á rýni á launakostnaði sviðsins þar sem skilgreina þarf nánar áhrif veikinda og yfirvinnu á launakostnað og vinna að lausnum til að draga úr álagi á starfsfólk. Áfram verði leitast leiða við að hagræða í rekstri og rýna þá liði í rekstrarkostnaði sem hækkað hafa umfram áætlanir, s.s. orkukostnað og áskriftarþjónustu. Að endingu þarf að endurskoða áætlunargerð með það fyrir augum að auka þarf nákvæmni við gerð fjárhagsáætlana til að draga úr frávikum í framtíðinni.

  4. 4. Fundaáætlun fjölskyldunefnda vor 2025r

    Mál 2404099 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir framlagða fundaáætlun

  5. 5. Frístundastyrkur Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2411050 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar fagnar þeirri hækkun sem nýverið var gerð á frístundastyrknum, sem nú nemur 18.000 kr. á hvert barn/ungmenni, með það að markmiði að auðvelda fjölskyldum þátttöku barna sinna í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.

    Til að tryggja enn frekara aðgengi allra barna í sveitarfélaginu að styrknum leggur nefndin fram tillögu um að afnema lágmarksaldur sem skilyrði fyrir nýtingu styrksins. Með þessari breytingu munu öll börn, óháð aldri, geta notið góðs af styrknum og tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi.

  6. 6. Reglur um stuðningsþjónustu 2025

    Mál 2501083 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á stuðningsþjónustu.

  7. 7. Árangursskýrsla UNICEF á Íslandi - Árangur innanlands í 20 ár

    Mál 2412143 Allur ferill málsins

    Árangursskýrsla UNICEF á Íslandi kynnt

  8. 8. Fjölmenningaráð

    Mál 2411165 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir framlagða tillögu að skipan fjölmenningarráðs Fjarðabyggðar og leggur til að fyrsti fundur ráðsins verði boðaður sem fyrst.

    Jafnframt bendir nefndin á að ráðið er ekki fullskipað og leggur til að auglýst verði eftir frekari tilnefningum með það að markmiði að fullskipa ráðið, auk varamanna, í samræmi við markmið þess og hlutverk.

    Fjölskyldunefnd leggur áherslu á mikilvægi fjölmenningarráðs í að efla fjölmenningu innan sveitarfélagsins og vonast til góðs samstarfs við ráðið í framhaldinu.

  9. 9. Jólasjóður 2024 - samantekt

    Mál 2412137 Allur ferill málsins

    Úthlutun úr jólasjóði Fjarðabyggðar kynnt.