Ársuppgjör fjölskyldusviðs fyrir 2024
Mál 2501098 Fyrst á dagskrá 20. janúar 2025, síðast 6. febrúar 2025. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fjölskyldunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2025
Fjölskyldunefnd, fundur 23 liður 3
Fjölskyldunefnd fór yfir ársuppgjör fjölskyldusviðs fyrir árið 2024 ásamt skýringum. Ljóst er að rekstrarniðurstaða sviðsins er neikvæð um 155.746.528 kr., miðað við útgönguspá. Helstu frávik má rekja til aukins veikinda- og yfirvinnukostnaðar vegna manneklu í leik- og grunnskólum, auk veikinda í íþróttamiðstöðvum. Þá hefur orkukostnaður og ýmis rekstrarútgjöld hækkað umfram áætlanir.
Lesa alla bókunina (97 orð til viðbótar)
Nefndin tekur undir að mikilvægt er að grípa til aðgerða til að bregðast við þessari stöðu. Nefndin leggur áherslu á eftirfarandi aðgerðir á rýni á launakostnaði sviðsins þar sem skilgreina þarf nánar áhrif veikinda og yfirvinnu á launakostnað og vinna að lausnum til að draga úr álagi á starfsfólk. Áfram verði leitast leiða við að hagræða í rekstri og rýna þá liði í rekstrarkostnaði sem hækkað hafa umfram áætlanir, s.s. orkukostnað og áskriftarþjónustu. Að endingu þarf að endurskoða áætlunargerð með það fyrir augum að auka þarf nákvæmni við gerð fjárhagsáætlana til að draga úr frávikum í framtíðinni.
-
Bæjarráð, fundur 880 liður 18.3
Fundargerðin „Fjölskyldunefnd - 23“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 391 liður 4.3
Fundargerðin „Fjölskyldunefnd - 23“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.