Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 320

9. desember 2024, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 875 liður 14

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 9. desember.

  • Bæjarstjórn, fundur 389 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024

    Mál 2305073 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda á árinu 2024. Hafnarstjórn þakkar verkefnastjóra hafna fyrir yfirferð á stöðunni.

  2. 2. Ósk um aðgang að eftirlitskerfum við Fjarðabyggðarhafnir

    Mál 2411126 Allur ferill málsins

    Lögð fram ítrekuð ósk Tollgæslunnar um aðgang að eftirlitsmyndavélum hafna Fjarðabyggðar ásamt uppfærðu lögfræðiáliti vegna beiðninnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að afla meiri gagna og vinna málið áfram.

  3. 3. Verkleg mengunarvarnaæfing

    Mál 2407059 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar endurmat verklegrar mengunarvarnaæfingar sem fram fór í Fjarðabyggðarhöfnum í október. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur verkefnastjóra hafna að færa nauðsynlegar aðgerðir undir öryggismál hafna.

  4. 4. Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa

    Mál 2409069 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar bréf frá Cruise Iceland varðandi ný lög um innviðagjald og gistináttaskatt ásamt frestunar á afnámi tollfrelsis. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.

  5. 5. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2024

    Mál 2410218 Allur ferill málsins

    Lögð fram tilkynning um greiðslu arðs ásamt fundargerð aðalfundar og ársreikningi Fiskmarkaðs Austurlands. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju sinni með góða afkomu síðasta árs og þakkar starfsmönnum Fiskmarkaðarins fyrir vel unnin störf.

  6. 6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024

    Mál 2402027 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 467.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.