Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 319

4. nóvember 2024, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 871 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 387 liður 7

    Til máls tók Elís Pétur Elísson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025

    Mál 2409131 Allur ferill málsins

    Drög að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025 lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir drögin með áorðnum breytingum á fundinum og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  2. 2. Endurnýjun stálþilja vegna tæringar

    Mál 1710016 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla Köfunarþjónustunnar ehf. vegna úttektar á stálþiljum í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra og verkefnastjóra hafna að kanna verð í viðgerð á stálþiljum.

  3. 3. Mat á stöðu innviða - Hafnir

    Mál 2410166 Allur ferill málsins

    Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafaverkfræðinga standa fyrir útgáfu State of the Nation skýrslu. COWI hefur það hlutverk að uppfæra slíka skýrslu frá árinu 2021 og hefur óskað eftir upplýsingum um ástand innviða og fjárfestingarþörf í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að taka saman upplýsingar, kynna fyrir hafnarstjórn og senda COWI.

  4. 4. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2024

    Mál 2410218 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til aðalfundar Fiskmarkaðs Austurlands ehf. þann 15.nóvember 2024. Hafnarstjóra er falið að fara með atkvæði á aðalfundinum og leggja til tilnefningu til stjórnar.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024

    Mál 2402027 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 466.fundar Hafnasambands Íslands