Hafnarstjórn, fundur 318
21. október 2024, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varamaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, varamaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 869 liður 39
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 23. október.
Bæjarstjórn, fundur 386 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025
Mál 2404220 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun 2025. Hafnarstjórn samþykkir framlögð gögn og vísar til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2025.
-
2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025
Mál 2409131 Allur ferill málsins
Drög að gjaldskrá 2024 lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir framlögð drög að gjaldskrá en felur verkefnastjóra hafna að vinna áfram að útfærslum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju til samþykktar.
-
3. Verkleg mengunarvarnaæfing
Mál 2407059 Allur ferill málsins
Verkleg mengunarvarnaæfing var haldin í Fjarðabyggðarhöfnum miðvikudaginn 16.október síðastliðinn. Landhelgisgæslan, Umhverfisstofnun, Samgöngustofa og Fjarðabyggðarhafnir stóðu fyrir þessari sameiginlegu æfingu ásamt því að Heilbrigðiseftirlit Austurlands og slökkvilið Fjarðabyggðar tóku þátt. Farið yfir framgang æfingarinnar og næstu skref. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.
-
4. Umsókn um styrk til menningarverkefna 2024
Mál 2410068 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni menningarstofu Fjarðabyggðar um styrk til menningarmála á árinu 2024. Hafnarstjórn samþykkir umbeðinn styrk.
-
5. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers
Mál 2410125 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers fyrirtækisins. Hafnarstjórn samþykkir að veita umsögn vegna endurnýjunar.
-
6. Boð á fund með vinnuhóp Alþjóðahafrannsóknaráðsins
Mál 2410060 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar boð á fund með vinnuhóp Alþjóðahafrannsóknaráðsins sem rannsakar vistkerfi Noregshafs og þróar aðferðir fyrir vistfræðilega stjórnun á nýtingu Noregshafs með áherslu á uppsjávarfiskastofna. Fundurinn verður haldinn 6. nóvember í húsnæði Hafrannsóknarstofnunar.