Hafnarstjórn, fundur 317
7. október 2024, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Birgir Jónsson, varamaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, varamaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 867 liður 12
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 7. október.
Bæjarstjórn, fundur 384 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025
Mál 2404220 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2025. Vísað til frekari vinnslu.
-
2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025
Mál 2409131 Allur ferill málsins
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð 2025. Vísað til áframhaldandi vinnslu.
-
3. Ósk um stækkun lóðar
Mál 2409124 Allur ferill málsins
Kaldvík hefur óskað eftir að fá að stækka lóð sína við Strandgötu 18 á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir stækkun lóðar Kaldvíkur fyrir sitt leyti og vísar til Skipulags- og framkvæmdanefndar. Frágangi lóðar skal hagað þannig að ekki sé aðgengi af lóð Kaldvíkur inn á hafnarsvæðið vegna hafnarverndar og afmörkun sé í samræmi við reglur hafnarverndar.
-
4. Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði
Mál 2409108 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til hafnarstjórnar erindi Goðaborgar ehf. varðandi lóðina sem frystihúsið á Breiðdalsvík stendur á sem og lóðir og götu í kringum brugghús, kaupfélag, frystihús, borkjarnasafn og gamla kaupfélag. Einnig varðar þetta hönnun og teikningar sem gerðar hafa verið af svæðinu, nefnt "Breiðtorg". Forsendur við fráveituframkvæmdir og frágang þeim tengdum breyttust og munu framkvæmdir miðast við fjárfestingaáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024 sem samþykkt var á 21. fundi mannvirkja- og veitunefndar þann 18.10.2023. Vegna breyttra forsendna er fallið frá fyrri ákvörðun hafnarstjórnar frá 283. fundi.
-
5. Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa
Mál 2409069 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar bréf sem Cruise Iceland og FHG - Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu sendu fjármála- og efnahagsráðherra vegna fyrirhugaðs afnáms tollfrelsis á skemmtiferðaskip þann 1.janúar 2025
-
6. Hafnasambandsþing 2024
Mál 2401111 Allur ferill málsins
Boðað hefur verið til 44. hafnsambandsþings Hafnasambands Íslands sem haldið verður í Hofi á Akureyri dagana 24.-25.október 2024. Skráningu þátttakenda á þingið lýkur 15.október. Hafnarstjórn mun sækja þingið ásamt hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna.
-
7. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Bæjarstjóra/hafnarstjóra hefur boðist að taka þátt í ferð viðskiptasendinefndar atvinnulífsins með Íslandsstofu, Grænvangi, Samtökum Iðnaðarins og Dansk-íslenska viðskiptaráðsins í tengslum við fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Danmerkur dagana 7.-10. október næstkomandi. Bæjarstjóri/hafnarstjóri verður hluti sendinefndarinnar. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.
-
8. Lagarlíf 2024
Mál 2311168 Allur ferill málsins
Ráðstefnan Lagarlíf verður haldin í Hörpu 8.-9. október næstkomandi. Lagt fram til kynningar.
-
9. Sjávarútvegsráðstefnan 2024
Mál 2410022 Allur ferill málsins
Sjávarútvegsráðstefnan 2024 verður haldin í Hörpu 7.-8. nóvember næstkomandi. Hafnarstjórn mun senda fulltrúa á Sjávarútvegsráðstefnuna.