Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 386

7. nóvember 2024, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025 - fyrri umræða

    Mál 2404213 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:04:40

    Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun við fyrri umræðu

    Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu bæjarstjórnar tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 ásamt þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2026 til 2028.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2025 ásamt þriggja ára fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Bæjarráð - 868

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:33:08

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson

    Fundargerð bæjarráðs frá 21. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20252404213
    2. 2.2 Rekstur málaflokka 20242403158
    3. 2.3 Gjaldskrá hitaveitu 20252409142
    4. 2.4 Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar2409216
    5. 2.5 Gjaldskrá fráveitu - hreinsun rotþróa2410115
    6. 2.6 Umsókn um lóð Blómsturvellir 312410074
    7. 2.7 Undirkriftarlisti varðandi lokun á líkamsræktarstöð á Reyðarfirði24101160:34:04
    8. 2.8 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 20262205172
    9. 2.9 Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar2410121
    10. 2.10 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands2410089
    11. 2.11 Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 20242410102
    12. 2.12 Stjórnkerfisnefnd 2020-20242011203
    13. 2.13 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 192410012F
  3. 3. Bæjarráð - 869

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:36:24

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20252404213
    2. 3.2 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 20252404224
    3. 3.3 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20252404223
    4. 3.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
    5. 3.5 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 20252404221
    6. 3.6 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20252404220
    7. 3.7 Gjaldskrá félagsheimila 20252409129
    8. 3.8 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025 20262409157
    9. 3.9 Gjaldskrá bókasafna 20252409125
    10. 3.10 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 20252409160
    11. 3.11 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 20252409130
    12. 3.12 Gjaldskrá frístundaheimila 20252409135
    13. 3.13 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20252409136
    14. 3.14 Gjaldskrá grunnskóla 20252409167
    15. 3.15 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 20252409146
    16. 3.16 Gjaldskrá íþróttahúsa 20252409147
    17. 3.17 Gjaldskrá leikskóla 20252409151
    18. 3.18 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20252409153
    19. 3.19 Gjaldskrá skíðasvæðis 20252409156
    20. 3.20 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20252409161
    21. 3.21 Gjaldskrá sundlauga 20252409162
    22. 3.22 Gjaldskrá tónlistarskóla 20252409163
    23. 3.23 Gjaldskrá þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn 20252409169
    24. 3.24 Gjaldskrá fasteignagjalda 202524091270:37:20
    25. 3.25 Gjaldskrá fráveitu 20252409133
    26. 3.26 Gjaldskrá rafhleðslustöðva 20252409166
    27. 3.27 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 20252409137
    28. 3.28 Gjaldskrá hunda- og kattahald 20252409143
    29. 3.29 Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 20252409154
    30. 3.30 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20252409155
    31. 3.31 Gjaldskrá vatnsveitu 20252409168
    32. 3.32 Umsögn varðandi vindorkugarð í Fljótdalshreppi2410132
    33. 3.33 Ágóðahlutagreiðsla 20242410174
    34. 3.34 Ályktun samþykkt á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands 20242410173
    35. 3.35 Ályktun stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga2410175
    36. 3.36 Sparkvöllur UMF á Breiðdalsvík24101590:38:16
    37. 3.37 Slökkviliðsstjóri auglýsing2308029
    38. 3.38 Stjórnkerfisnefnd 2020-20242011203
    39. 3.39 Hafnarstjórn - 3182410021F
  4. 4. Bæjarráð - 870

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 4. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20252404213
    2. 4.2 Útsvar 20252410181
    3. 4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
    4. 4.4 Alþingiskosningar 20242410081
    5. 4.5 Reglur Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning2410179
    6. 4.6 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2306063
    7. 4.7 Erindi um styrk til greiðslu fasteignaskatts2410212
    8. 4.8 Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 20242401142
    9. 4.9 Fjölskyldunefnd - 152410015F
    10. 4.10 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 202410026F
    11. 4.11 Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 42410017F
    12. 4.12 Starfshópur um breytingar í leikskólum - 42410016F
    13. 4.13 Starfshópur um breytingar í leikskólum - 52410023F
  5. 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 19

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:39:40

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson,

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. október utan liðar 6 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði2406025
    2. 5.2 Umsókn um lóð Blómsturvellir 312410074
    3. 5.3 Umsókn um lóð Strandgata 46c2409052
    4. 5.4 Framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu2408102
    5. 5.5 Fjarlægja vinnubúðir að Hlíðabrekku 5 og 7, Fáskrúðsfirði.2409118
    6. 5.6 Lundargata 4 aðgengi24080650:39:40
    7. 5.7 Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði2409108
    8. 5.8 Opnunartíma ruslasvæðis á Stöðvarfirði2409149
    9. 5.9 Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,7352409211
    10. 5.10 Boð á Umhverfisþing2409262
    11. 5.11 Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar2409216
    12. 5.12 Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 20242410045
    13. 5.13 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20252409155
    14. 5.14 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 20252404221
    15. 5.15 Skipulagsdagurinn 20242410067
    16. 5.16 Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna2410082
    17. 5.17 Númerslausir bílar23040690:41:04
  6. 6. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 20

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:40:08

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Staða verkefnisins endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna24101190:42:28
    2. 6.2 Umsögn varðandi vindorkugarð í Fljótdalshreppi2410132
    3. 6.3 Umsókn um stækkun á lóð fyrir bílastæði2410162
    4. 6.4 Olíutankar á Reyðarfirði.24101640:43:52
    5. 6.5 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20242404185
    6. 6.6 Opnunartími móttökustöðvar á Stöðvarfirði24101670:40:08
  7. 7. Fjölskyldunefnd - 15

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:45:44

    Til máls tók Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
    2. 7.2 Okkar heimur á norður- og austurlandi24100750:46:12
    3. 7.3 Íþrótta- og tómstundastyrkir 202524101780:47:36
    4. 7.4 Sundlaugin á Stöðvarfirði2410076
    5. 7.5 Reglur Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning2410179
  8. 8. Hafnarstjórn - 318

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20252404220
    2. 8.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20252409131
    3. 8.3 Verkleg mengunarvarnaæfing2407059
    4. 8.4 Umsókn um styrk til menningarverkefna 20242410068
    5. 8.5 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers2410125
    6. 8.6 Boð á fund með vinnuhóp Alþjóðahafrannsóknaráðsins2410060
  9. 9. Útsvar 2025

    Mál 2410181 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:50:24

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir álagningu útsvars.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að álagningarhlutfall útsvars árið 2025 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að álagningarhlutfall útsvars árið 2025 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð.

  10. 10. Gjaldskrá fasteignagjalda 2025

    Mál 2409127 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:52:44

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum um afslætti og gjaldskrá fasteignagjalda árið 2025.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að álagningarstofnum fasteignagjalda fyrir árið 2025.

    ásamt reglum um afslátt fyrir elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2025.

    Gjaldskráin og reglurnar taka gildi þann 1. janúar 2025.

    Fasteignaskattur A verði 0,424 % af húsmati og lóðarhlutamati

    Fasteignaskattur B verði 1,320 % af húsmati og lóðarhlutamati

    Fasteignaskattur C verði 1,650 % af húsmati og lóðarhlutamati

    Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00 % af lóðarhlutamati.

    Vatnsgjald skv. gjaldskrá 4.985 kr. á veitu og 408 kr. pr. fermetra húsnæðis.

    Fráveitugjald skv. gjaldskrá 0,3232 % af húsmati.

    Sorphreinsunargjald skv. gjaldskrá 53.279 kr. á heimili.

    Sorpeyðingargjald skv. gjaldskrá 36.639 kr. á heimili.

    Fjöldi gjalddaga verði tíu, mánaðarlega frá 1. febrúar. Eindagi fasteignagjalda er

    síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Afsláttur til eldri borgara og örorkulífeyrisþega er framreiknaður frá fyrra ári

    m.v. breytingar á launavísitölu og meðalbreytingu fasteignamats íbúðarhúsnæðis.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa álagningarstuðlum fasteignagjalda í

    gjaldskrá fasteignagjalda árið 2025 til frekari vinnu við fjárhagsáætlun milli umræðna.

  11. 11. Reglur Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning

    Mál 2410179 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:56:28

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á reglum.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á reglum Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

  12. 12. Alþingiskosningar 2024

    Mál 2410081 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:57:24

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu yfirkjörstjórnar.

    Framlögð tillaga yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnunartíma þeirra á kjördegi Alþingiskosninga þann 30. nóvember nk. Yfirkjörstjórn leggur til að kjörstaðir og opnunartímar þeirra verði:

    Mjóifjörður: Sólbrekka

    Norðfjörður: Nesskóli

    Eskifjörður: Eskifjarðarkirkja

    Reyðarfjörður: Safnaðarheimilið

    Fáskrúðsfjörður: Grunnskólinn

    Stöðvarfjörður: Grunnskólinn

    Breiðdalsvík: Grunnskólinn

    Kjörstaðir verði opnir frá 09:00 til 22:00 á kjördag nema í Mjóafirði verði opið frá kl. 09:00-14:00 (lokun þar verði eins fljótt og unnt er skv. 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021).

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnun þeirra vegna Alþingiskosninga sem fara fram 30. nóvember.

  13. 13. Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði

    Mál 2406025 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:59:44

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir nýju deiliskipulagi.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar deiliskipulagi tjaldsvæðis á Norðfirði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulag tjaldsvæðis á Norðfirði.