Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 15

29. október 2024, kl. 16:00 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson
  • Anna Marín Þórarinsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 870 liður 9

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. október sl. lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 386 liður 7

    Til máls tók Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025

    Mál 2404222 Allur ferill málsins

    Farið yfir lokadrög í starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Fjölskyldunefnd samþykkir fjárhagsáætlun og vísar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Okkar heimur á norður- og austurlandi

    Mál 2410075 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd frestar afgreiðslu á styrkbeiðni og felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.

  3. 3. Íþrótta- og tómstundastyrkir 2025

    Mál 2410178 Allur ferill málsins

    Deildarstjóri íþrótta- og tómstundamála kynnti drög að nýjum styrktarreglum fyrir íþrótta- og æskulýðsfélög. Fjölskyldunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar til bæjarráðs.

  4. 4. Sundlaugin á Stöðvarfirði

    Mál 2410076 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd leggur til að rætt verði við íbúasamtök Fáskrúðsfjarðar um möguleika á því að endurskoða opnunartímann yfir sumartímann með það fyrir augum að lengja opnunartíma í sundlaug Stöðvarfjarðar yfir þann tíma. Stjórnandi íþrótta ogfrístundamála býður samtökunum á fund til að ræða málið.

  5. 5. Reglur Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning

    Mál 2410179 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar til bæjarráðs.